Segir stjórnvöld hafa sofnað á verðinum í forvarnarstarfi
0
World

Segir stjórnvöld hafa sofnað á verðinum í forvarnarstarfi

April 17, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Stjórnvöld hafa sofnað á verðinum í forvörnum gegn fíkniefnum, segir Árni Einarsson uppeldis- og menntunarfræðingur.Árni stofnaði Fræðslumiðstöð í fíkniefnum árið 1993 og er nú framkvæmdastjóri Fræðslu og forvarna, félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu.Í Kveik var fjallað um sprengingu á innflutningi á kókaíni sem varð í fyrra. Metmagn af fíkniefnum er í umferð.Má aldrei gefa forvörnum slakaForvarnir eru langtímaverkefni og það má aldrei gefa þeim slaka, að mati Árna.Í fyrsta lagi þá þurfum við að hafa það í huga að allt sem við getum kallað forvarnir og snýr að þeim, þetta er viðvarandi verkefni.

Segir stjórnvöld hafa sofnað á verðinum í forvarnarstarfi

Þetta er ekki eitthvað sem við getum hlaupið í bara þegar eitthvað bjátar og hlutirnir fara að síga á verri hlið.“Árni segir mikilvægt, í forvörnum, að fá almenna þátttöku og samstarf ólíkra aðila sem koma að uppeldi barna.Hann segir árangur slíkrar samstöðu meðal annars hafa sýnt sig þegar tekið var á unglingadrykkju á sínum tíma. Að mati Árna er þó ekkert eitt sem getur skýrt þá stöðu sem er komin upp.Ekki að öðru leyti en því en þegar það er eftirspurn, þegar það er áhugi á því að nota efni, þá auðvitað er auðveldara að koma þeim í lóg, koma þeim í sölu. Þar með ýtir það undir innflutning.“Samfélagið er fórnarlamb eigin velgengniStaðan kemur Árna ekki á óvart. Hann segir þó varasamt að benda á einhverja sökudólga þegar svona bylgjur í innflutningi og neyslu verða.Allir þurfi að kalla sig til ábyrgðar.Hann segir vísbendingar hafa verið uppi, undanfarna mánuði, um aukna áfengisneyslu.Þannig ég lít á að við séum að svona, hvað eigum við að segja, það sé að verða til einhver staða eða ástand sem við svo sem þekkjum frá árum áður. Sömuleiðis vitum við um ýmislegt sem virkar.“Árni segir forvarnir virka, það hafi sýnt sig þegar tekið var á unglingadrykkju á sínum tíma. Sambærilega samstöðu þurfi nú í baráttunni gegn fíkniefnum.Við reynum að ná til foreldra, uppalenda, sem er kannski mikilvægasti hópurinn í þessu samhengi. En sömuleiðis auðvitað skóla og uppeldisstofnanir, hverjar svo sem þær eru. Æskulýðs- og íþróttastarf sömuleiðis.“Dregið hefur úr fjárframlögum til forvarnarstarfs og Árni segist finna vel fyrir því í sínu starfi.Hafa stjórnvöld sofnað á verðinum í forvarnarstarfi?Já, ég ætla nú bara að leyfa mér að fullyrða það.....Að vissu leyti og ég held að við þurfum svolítið að hafa það í huga, þannig við séum ekki svona að ásaka út og suður, að kannski erum við fórnarlömb eigin velgengni.“Sérfræðingur í forvörnum segir stjórnvöld hafa sofnað á verðinum í forvarnarstarfi. Hann vill aukna samstöðu í baráttunni gegn fíkniefnum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More