Segir Foreldrahús hafa sótt um meira fé en þurfti
0
World

Segir Foreldrahús hafa sótt um meira fé en þurfti

April 19, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Ekki stendur til að endurskoða fjárveitingar til Foreldrahúss. Þetta segir mennta- og barnamálaráðherra, farið hafi verið fram á talsvert meira fé en þurfi til starfseminnar og ekki hafi verið hægt að verða við því.Í Foreldrahúsi er ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda, það hefur verið til í 40 ár og þar fá um 500 börn aðstoð á hverju ári.Verður lokað 1.

Segir Foreldrahús hafa sótt um meira fé en þurfti

maíNú stendur til að húsinu verði lokað 1. maí vegna þess að starfsemin fékk ekki styrk frá ríkinu og forsvarsmenn tala um áhugaleysi stjórnvalda.Berglind Gunnarsdóttir Strandberg framkvæmdastjóri Foreldrahúss sagði í viðtali við fréttastofu að þar hefði byggst upp reynsla og traust í áratugi og það skyti skökku við að loka einu af fáum úrræðum fyrir börn í vanda.Kom á óvart að sótt var um 100 milljónirInga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir ekki standa til að endurskoða þessa ákvörðun. Það er gildandi samningur í mínu ráðuneyti við Foreldrahús til 3. september næstkomandi,“ segir Inga. Við styrktum þau um 12,5 milljónir króna , hvöttum þau til að sækja um aftur og það kom á óvart að umsóknin hljóðaði upp á 100 milljónir króna á sama tíma og búið var að gefa það út að reksturinn kostaði 60 milljónir.“Mikilvægt starf unnið í ForeldrahúsiInga segir að Foreldrahús veiti svokallaða 1. stigs eða snemmtæka þjónustu. Sem er í rauninni sú þjónusta sem er á höndum sveitarfélaganna,“ segir hún.Ríkið hefur tekið utan um 3. stigs þjónustu; erfiðari og snúnari vanda. Þannig að þessi ákvörðun var tekin, eins og er þá er þetta staðan. Það er líka ástæða til að nefna að hvert viðtal í Foreldrahúsi kostar 22.000 krónur sem er vel í lagt, myndu flestir telja.“Afar mikilvægt starf hafi verið unnið í Foreldrahúsi, að mati ráðherra. Ég óska þeim alls hins besta og hvet þau til að sækja um aftur og einhverja aðra tölu en við fengum síðast inn á borð.“Hvetur sveitarfélögin til dáðaNúna fellur þessi þjónusta niður að öllu óbreyttu - kemur eitthvað í staðinn? Hvert geta þessir foreldrar og börn leitað? Þetta er mikilvægt starf, mikilvæg þjónusta fyrir þennan viðkvæma hóp og ég hvet sveitarfélögin til dáða til að taka utan um hann enn frekar og fylgja honum eftir.“Þannig að ef þau hefðu sótt um lægri upphæð hefði þá þessi staða ekki komið upp? Þessi upphæð var þannig að ekkert okkar áttaði sig á henni. Svo það sé sagt.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More