Segir Evrópu hafa veitt Bandaríkjunum margvíslegan stuðning
April 9, 2026
RÚV
Evrópa hefur veitt Bandaríkjunum margvíslegan stuðning undanfarnar vikur í stríðinu við Íran, að sögn framkvæmdastjóra NATO. Bandaríkjaforseti gagnrýndi bandalagið fyrir að standa ekki með Bandaríkjunum og hótaði að draga þau út úr bandalaginu.Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, NATO, er í Bandaríkjunum. Hann fundaði bæði með Marco Rubio utanríkisráðherra og Donald Trump Bandaríkjaforseta í gær.
Í dag flutti hann ræðu í Ronald Reagan-stofnuninni í höfuðborginni Washington D. C.Hann svaraði gagnrýni forsetans og sagði suma bandamenn hafa verið seina af stað, en í sanngirni sagt hefðu árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran líka komið bandamönnum í opna skjöldu. Hann sýndi því þó skilning að Trump hefði ekki látið bandamenn vita fyrirfram.Það sem hann sæi hjá leiðtogum Evrópu í dag væri hins vegar mikill stuðningur við Bandaríkin.Bandamenn í Evrópu hefðu tryggt Bandaríkjunum aðgang að herstöðvum, greitt fyrir flutninga og aðrar ráðstafanir til að tryggja að Bandaríkjaher tækist að neita Íran um kjarnorkuvopn og draga úr getu þeirra til að skapa ringlureið.Nánast án undantekninga hefðu bandamenn gert allt sem Bandaríkin hefðu beðið um.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.