Samstarfið entist ekki fram að kosningum
March 31, 2026
RÚV
Vinstri græn í Kópavogi ætla að bjóða fram lista til bæjarstjórnarkosninga undir heitinu Vinstri græn og óháðir. Fyrr í þessum mánuði var tilkynnt um sameiginlegt framboð Vinstri grænna og bæjarmálafélagsins Fyrir Kópavog. Nítján dögum síðar er ljóst að ekkert verður af því.Bæjarmálafélagið Fyrir Kópavog dró sig út úr samstarfi um framboð og segir í tilkynningu Vinstri grænna að þau virði þá ákvörðun.
Ómar Stefánsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi, átti að leiða sameiginlegan lista. Hann kvaðst ekki geta upplýst að svo stöddu hví bæjarmálafélagið hefði hætt við en sagði ólíklegt að það byði fram.Vinstri græn bjóða því fram lista í Kópavogi undir heitinu Vinstri græn og óháðir. Anna Sigríður Hafliðadóttir verður oddviti listans. Hún skipaði þriðja sæti á lista Vinstri grænna fyrir fjórum árum og átti á skipa annað sætið á sameiginlegum lista.Í framboðstilkynningu Vinstri grænna og óháðra segir að þau bjóði fram skýran og róttækan valkost fyrir Kópavog sem byggi á öflugri velferð, húsnæðisöryggi, umhverfis- og náttúruvernd, sterkri nærþjónustu og raunverulegu íbúasamráð.Vinstri græn fengu 5,3 prósent atkvæða í síðustu bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi og náðu ekki fulltrúa í bæjarstjórn.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.