Saint Pete lofar plötu í sumar

Saint Pete lofar plötu í sumar

Ég reyni að minnast á Akureyri í hverju lagi, það er bara eina í stöðunni – og brekkuna helst sko,“ sagði rapparinn Saint Pete, Pétur Már Guðmundsson, í Vikunni með Gísla Marteini.Þó að Vikan sé vikulegur þáttur var hann með nokkuð ólíku sniði í kvöld enda var þættinum sjónvarpað frá Akureyri í þetta sinn í stað Reykjavíkur. Það er því engin furða að Saint Pete hafi verið meðal gesta en hann er einn vinsælasti tónlistarmaðurinn á Norðurlandi um þessar mundir. Gísli spurði Saint Pete út í væntanlega plötu sem hann hefur lofað að komi út á ýmsum tímum en er það ekki enn.Viltu lofa einhverri nýrri dagsetningu núna?Mér líður pínu illa yfir því. Ég er alltaf eitthvað hún kemur út í október, hún kemur út í febrúar. Að ljúga að fólkinu! Ég vil ekki gera það lengur EN hún kemur út í júní!“

March 27, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left