Ryðdallar skuggaflotans færast norðar
March 30, 2026
RÚV
Breskir fjölmiðlar slá því upp að Vladímír Pútín vilji með þessu ögra Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og að skipið geti verið ógn við innviði.Íslensk yfirvöld segjast í góðu sambandi við írska starfsbræður en þar sem skipið sé utan efnahagslögsögu Írlands sé ekki hægt um vik. Íris sé þó líklega ekki í neinni hættu í þetta sinn.Þar sem skipið heldur sig er sæstrengurinn á um tveggja kílómetra dýpi.
Skip af þessu tagi valda helst skemmdum með því að draga akkeri á eftir sér yfir sæstrengi og aðra innviði í hafi – en á svona dýpi er það ekki raunhæft. Vandamálið eða ógnin felst frekar í að skipið hafi lagt lykkju á upphaflega leið sína. Það sé birtingarmynd þess að tekið sé harðar á skuggaflotanum sem hafi annars konar afleiðingar. Hvað er skuggaflotinn? Það er floti skipa, fraktskipa og olíuflutningaskipa, sem ríki eins og Rússland og Íran nota til að komast fram hjá refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum. Flest skipin eru gamlir ryðdallar sem sigla undir fölsku flaggi – og gerðu það nánast alveg óáreitt, fram að Bellu.Bella markaði kaflaskilÍ byrjun árs réðist bandaríska landhelgisgæslan ásamt hermönnum um borð í skipið Bellu rétt sunnan við efnahagslögsögu Íslands. Skipið tilheyrir skuggaflotanum og var á ferð frá Venesúela til Rússlands.Ef í kjölfarið ákváðu fleiri að láta til sín taka.Hálfum mánuði eftir Bellu gripu Frakkar Grinch en slepptu eftir sektargreiðslu.Í byrjun febrúar gerðu Eistar áhlaup á fraktskipið Baltic Spirit“.Í marsbyrjun voru það Belgar sem gripu olíuflutningaskipið Ethera í Norðursjónum.Svíar tóku fraktskipið Caffa í Eystrasaltinu 6. mars og 12. mars olíuflutningaskipið Sea Owl 1Þann tuttugasta mars voru það aftur Frakkar sem tóku olíuflutningaskipið Deyna í vestanverðu Miðjarðarhafi.Starmer boðar stefnubreytinguFyrir helgi varð enn ein vendingin. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, boðaði meiri hörku í aðgerðum gegn skuggaflotanum. Hann sagði hlakka í Pútín þegar hann fylgdist með ört hækkandi olíu- og gasverði vegna ástandsins við Persaflóa. Ryðdallarnir í skuggaflotanum flyttu 75 af útfluttri olíu Rússlands og lékju því lykilhlutverk í að fjármagna stríðið í Úkraínu. Og hann sagði ástandið á skipunum þannig að þau væru bæði umhverfis- og slysahætta.Starmer kvaðst fús að grípa til einhliða aðgerða. En hann gerði þetta á fundi JEF-ríkjanna, þar sem Kristrún Frostadóttir var líka, og í lokayfirlýsingu fundarins var hnykkt á því að aðildarríkin ætluðu að starfa nánar saman en fyrr við að taka á skuggaflota Rússa.Á sama tíma lagði Indri lykkju á leið sína þar sem hann stefndi á Ermarsund, líkast til á leið til Pétursborgar, hélt í vesturátt og norður rétt utan við efnahagslögsögu Írlands, þar sem hann bíður enn, yfir sæstrengnum Írisi. Líkast til heldur hann svo áleiðis til Múrmansk en Norðmenn hafa vaxandi áhyggjur af fjölda skuggaflotafleyja sem sigla fram hjá Noregsströndum á leið sinni austur yfir. Þeir deila sömu áhyggjum og Starmer: Að ótryggðir ryðdallar geti valdið umhverfisslysum og ef eldra, illa tryggt skip lendir í árekstri eða strandar í slæmu veðri geti það reynst mjög flókið og erfitt viðfangsefni. Norðmenn töldu 260 skuggaflotaskip á þessari leið í fyrra.Þegar Evrópuþjóðir boða aukna hörku gagnvart skuggaflotanum er freistandi að flytja siglingaleiðir þeirra annað, þar sem eftirlit er minna – til dæmis á hafsvæðið sem er nær Íslandi. Heimildarmenn RÚV segja getu Íslendinga til að fylgjast með svona skipaumferð í kringum landið takmarkaða, í besta falli, og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, hefur staðfest það í viðtölum. Þessi skip senda líka oft rangar staðsetningarupplýsingar, hafa til dæmis sent merki um að vera uppi á Vatnajökli. Enginn veit hvort þessi skip hafa verið í nánd við Íslandstrendur en það eru sannarlega áhyggjur af að þau færi sig hingað, þar sem eftirlit er minna og ólíklegra að einhver grípi þau.Íslendingar reiða sig á upplýsingar frá bandamönnum en í röðum þeirra gætir þreytu á getuleysi Íslendinga, samkvæmt heimildarmönnum RÚV. Þegar rússnesk herskip sigldu hringinn í kringum Ísland árið 2020 urðu hvorki NATO né Landhelgisgæslan skipanna vör. Sjómenn á fiskiskipaflotanum voru þeir sem komu fyrstu auga á herskipin, smelltu myndum af þeim og sendu Landhelgisgæslunni.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.