Rútuferðir upp í Hlíðarfjall eins og í gamla daga
April 4, 2026
RÚV
Ríflega þrjú þúsund manns skíðuðu í Hlíðarfjalli í dag. Gripið var til þess ráðs að bjóða upp á fríar rútuferðir upp í fjall til að koma í veg fyrir umferðaröngþveiti og gekk eins og í sögu, segir Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður skíðasvæðisins.Já, það var bara ansi mikil umferð í gær en það gekk samt bara ágætlega. Það var bara mikill fjöldi og það var svolítið mikil röð bara meðfram veginum þar sem fólk var að leggja, þannig að við ákváðum að prufa að bjóða okkur rútur í dag eins og við gerðum í gamla daga og það gekk bara mjög vel í dag og bara þó nokkuð margir sem nýttu sér rúturnar.“Brynjar segir að færið sé eins og best verði á kosið og útlit fyrir svipað veður á morgun.Það er bara búið að vera alveg bara frábært.
Ég held að ég hefði ekki getað beðið um betri páska. Við fengum smá snjókomu og þeir sem mættu snemma þeir gátu skíðað í púðri í morgun og svo var bara algjört logn og svona mínus tvær til þrjár gráður. Það var ekki ekki alveg heiðskýrt það var smáský en sólin náði alveg í gegn og þetta var bara alveg alveg yndislegt,“ segir Brynjar.Á morgun verði austanátt en hún nái oft ekki upp í fjallið nema hún sé mjög öflug. Aftur verður boðið upp á rútuferðir á morgun.Við ætlum að halda bara nákvæmlega sama plani og við gerðum í dag og við rúturnar byrja 9:30,“ segir Brynjar.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.