Rússneskt olíuskip á leið til Kúbu
World

Rússneskt olíuskip á leið til Kúbu

March 30, 2026
RÚV
Scroll

Rússneskt olíuskip er á leið til Kúbu og ætti að öllu óbreyttu að koma til hafnar á mánudagskvöld að staðartíma. Um 730.000 þúsund tunnur af olíu eru um borð í skipinu.Fréttamiðillinn The New York Times greinir frá því að Landhelgisgæsla Bandaríkjanna muni ekki stöðva skipið og því verði leyft að sigla til Kúbu. Ekki liggur fyrir af hverju Bandaríkjastjórn hefur ekki fyrirskipað að skipið verði stöðvað.

Rússneskt olíuskip á leið til Kúbu

Þá er ekki ljóst hvort frekari innflutningar á rússneskri olíu verði leyfðir til eyjunnar.Mikið neyðarástand hefur verið í orkumálum á eyjunni síðan í janúar vegna viðskiptaþvingana Bandaríkjanna og olíubirgðir eyjunnar eru af afar skornum skammti. Eldsneytisskortur, rafmagnsleysi, snarpar verðhækkanir og versnandi ástand í heilbrigðismálum hefur leikið því íbúa eyjunnar grátt af þessum sökum.Viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna hafa verið gagnrýndar, meðal annars af Sameinuðu þjóðunum, sem hafa sagt að Bandaríkin séu að valda mannúðarkrísu á Kúbu.Bandaríkjastjórn hefur ekki farið leynt með þá ósk sína að hún vilji sjá stjórnarskipti á Kúbu. Efnahagurinn á Kúbu þarf að breytast, og efnahagurinn breytist ekki nema stjórnmálakerfi þeirra breytist,“ sagði Marco Rubio utanríkisráðherra á föstudaginn í viðtali við blaðamenn.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More