Rússar sýna samstöðu með Kúbu
World

Rússar sýna samstöðu með Kúbu

April 10, 2026
RÚV
Scroll

Aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, Sergei Ryabkov, fundaði með Miguel Diaz-Canel forseta Kúbu í gær. Fundur þeirra er haldinn tíu dögum eftir að rússneskt olíuflutningaskip flutti olíu til eyjunnar þvert á viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna.Forsetaskrifstofa Diaz-Canel sendi út tilkynningu eftir fund þeirra þar sem kærri kveðju var komið á framfæri til Vladimirs Pútíns Rússlandsforseta.

Rússar sýna samstöðu með Kúbu

Í tilkynningunni sagði einnig að aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands hefði sagt að Rússland sýndi fulla samstöðu með Kúbu og stæði þétt með landinu þrátt fyrir þá stöðu sem landið væri í.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað tollum á hvert það land sem selur olíu til Kúbu. Bandaríkin skilgreina Kúbu sem ógn við þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, hefur farið fram á breytingar á stjórnvöldum á Kúbu.Kúbuforseti sagði í viðtali við bandaríska fjölmiðilinn NBC News í gær að hann ætli ekki að láta undan þrýstingi frá Bandaríkjunum og segja af sér.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More