Rúður brotnar og víni hnuplað í Vesturbænum
World

Rúður brotnar og víni hnuplað í Vesturbænum

March 28, 2026
RÚV
Scroll

Tvær rúður voru brotnar og nokkrum vínflöskum stolið þegar brotist var inn á veitingastaðinn Pizza 107 í Vesturbænum í morgun.Valgeir Gunnlaugsson, annar eiganda staðarins, segir innbrotið hafa náðst á eftirlitsmyndavélar staðarins. Málið er komið á borð lögreglu.Tók stein úr vasanum og fleygði í rúðunaÉg fæ símtal frá lögreglunni í morgun,“ segir Valgeir.

Rúður brotnar og víni hnuplað í Vesturbænum

Þá var búið að brjóta ekki eina heldur tvær rúður og glerbrot úti um allt. Það var bara vín sem var tekið, sem ekkert fleira.“Að sögn Valgeirs sést innbrotsþjófurinn vel á eftirlitsmyndavélum staðarins. Á þeim sést viðkomandi koma á hlaupahjóli að veitingastaðnum haldandi á kassa, taka stein upp úr vasanum og grýta í rúðuna.Valgeir segist hafa velt því fyrir sér hvort þjófinn hafi einfaldlega vantað vín í partý næturinnar. Engum öðrum verðmætum var stolið.Þetta er leiðinlegt og vesen og það er vont að vakna upp við þetta,“ segir Valgeir.Þrátt fyrir atburði morgunsins tókst að opna staðinn á hádegi í dag, rétt eins og alla aðra laugardaga.Við höldum bara okkar vanagangi. Við erum búin að þrífa allt og ofninn er orðinn heitur,“ segir Valgeir.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More