Ríkisstjórn ekki í sjónmáli í Danmörku
April 9, 2026
RÚV
Stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku hafa gengið hægt. Viðræðurnar hafa fyrst og fremst verið á milli Mette Frederiksen leiðtoga Jafnaðarmanna og Lars Løkke Rasmussen leiðtoga Moderaterne, með þátttöku annarra flokka í Rauðu blokkinni. Borgaralegu flokkarnir hafa lítið sem ekkert tekið þátt í þeim.Leiðtogar Jafnaðarmanna og Moderaterne funduðu síðast á þriðjudagskvöld.
Að þeim fundi loknum sagði Lars Løkke Rasmussen að það væri góður andi í viðræðunum, en samningar gengju hægt. Hann deildi metnaði flokkanna í að bæta drykkjarvatn og skólakerfi. En fyrst og fremst þarf fjármagn að vera til staðar,“ sagði hann.Í orðum hans mátti jafnframt greina efasemdir um að stjórn frá miðju til vinstri væri með nógu sterka efnahagsstefnu. Ef það á að ná þeim metnaðarfullu markmiðum að skapa sterkari opinberan geira og tryggja stöðu Danmerkur í þeirri orkukreppu sem nú ríkir, þá þarf slagkraft,“ sagði hann í gær. Hann ítrekaði jafnframt þá ósk sína að það yrði mynduð stjórn yfir miðju og hvatti Venstre og Íhaldsflokkinn til að opna á slíkt samtal.Festist í lyftuFramangreindur fundur stóð í fjóra og hálfan tíma en hluti af ástæðunni fyrir því var að Rasmussen og þrír starfsmenn Moderaterne festust í lyftu í forsætisráðuneytinu á leiðinni út af fundinum. Rasmussen vildi í samtali við fjölmiðla ekki segja nákvæmlega hversu lengi þeir sátu fastir, aðeins að það hefði verið nokkur tími. Þetta er kannski nokkuð táknrænt um hvernig þessar viðræður ganga.Mette Frederiksen hefur ekki tjáð sig um gang viðræðnanna síðan á mánudagskvöld. Þá sagði hún að tvö mál væru sett algjörlega á oddinn ef Jafnaðarmenn ættu að leiða ríkisstjórn – strangari innflytjendastefna og bann við úðun eiturefna til að vernda drykkjarvatn. Stjórnmálaskýrendur hafa vakið athygli á að auðlegðarskattur hafi ekki verið settur sem afarkostur, og næststærsti flokkurinn, Sosialiske folkeparti, hefur einnig lýst sig opinn fyrir öðrum fjármögnunarleiðum. Lars Løkke Rasmussen hefur verið neikvæður gagnvart auðlegðarskatti.Hans Engell, stjórnmálaskýrandi hjá TV2, segir ríkisstjórn ekki í sjónmáli. Það sé þó engin kreppa komin þó að rúmur hálfur mánuður sé frá kosningum, því dæmi séu um að það hafi tekið 50 daga að mynda ríkisstjórn. Það eru hins vegar 12 flokkar á þingi og þegar sest er niður og flokkunum raðað saman er mjög erfitt að ná þeim meirihluta sem þarf til að mynda stjórn. Og mitt í hringiðunni situr Lars Løkke Rasmussen,“ segir Engell og vísar þá í að hann geti leitað til borgaralegu flokkanna.Engell spáir því að þessar viðræður endi með því að leiðtogarnir mæti aftur til konungsins, og að þeim loknum fái Mette Frederiksen nýtt og breiðara umboð – þá mögulega til að mynda stjórn yfir miðju.Frederiksen og Rasmussen funda næst um myndun nýrrar ríkisstjórnar á morgun.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.