Advertisement
Ríkið styrkir menningu á Akureyri um 1,3 milljarða
World

Ríkið styrkir menningu á Akureyri um 1,3 milljarða

April 3, 2026
RÚV
Scroll

Íslenska ríkið og Akureyrarbær hafa endurnýjað menningarsamning sín á milli. Samningurinn gildir til fjögurra ára og er framlag ríkisins til verkefna hans um 30 af heildarkostnaði. Áætlaður kostnaður er um 4,3 milljarðar króna og er hluti ríkisins því 1,3 milljarðar króna.Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, undirrituðu samninginn í gær.

Ríkið styrkir menningu á Akureyri um 1,3 milljarða

Greint er frá honum á vef Stjórnarráðs Íslands.Stuðla að uppbyggingu Akureyrar sem svæðisborgarMegintilgangur samningsins er áframhaldandi samstarf um þróun og starfsemi listasafns, atvinnuleikhúss, sinfóníuhljómsveitar og menningarhúss á Akureyri. Samningurinn er að þessu sinni jafnframt tengdur beint við þá stefnu að Akureyri verði formlega svæðisborg á Íslandi. Litið er á menningarstarf sem mikilvæga innviði í samfélaginu og með því að efla þá vilja ríki og bær stuðla að þróun og uppbyggingu Akureyrar sem svæðisborgar,“ segir þar.Samstarfið auki þannig aðgengi að menningu fyrir alla, óháð búsetu, og skapi atvinnutækifæri fyrir listafólk sem vill gera Akureyri að sínum starfsvettvangi.Haft er eftir Ásthildi á vef Stjórnarráðsins að Íslendingar þurfi leið til að skapa sér sérstöðu, breikka framboð á sviði menningar og lista og efla sköpunarkraftinn öllum til heilla.Ég er mjög ánægð með þennan nýja samning og ljóst að menningarmálaráðherra leggur hér þung lóð á vogarskálar þess að efla Akureyri sem svæðisborg en hugmyndin um hana er að mínu mati óhugsandi án þess að við gerum ráð fyrir öflugri atvinnustarfsemi í menningu og listum,“ segir hún.Vilja auka aðgengi að menninguÞá er haft eftir ráðherra að ein af stefnuáherslum ríkisstjórnarinnar sé að auka aðgengi þjóðarinnar að menningu óháð búsetu og efnahag. Í því felist aukin tækifæri til þátttöku í skapandi starfi, til að sækja menningarviðburði og starfa við menningu.Menning er límið í hverju samfélagi og við vitum að hún skiptir miklu máli þegar fólk ákveður hvar það vill búa. Á Akureyri er blómlegt menningarlíf og þar eru menningarinnviðir og stofnanir til staðar sem standa þarf vörð um og efla,“ segir Logi.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More