„Ríkið er ekki að hagnast neitt á þessu“
April 8, 2026
RÚV
Fjármálaráðherra segist skilja óánægju með framkvæmd í kringum kílómetragjaldið. Auðvelt sé að misskilja ýmislegt kerfislægt og sumt í lögunum hjálpi ekki. Rúmlega 40.600 manns höfðu í morgun sett nafn sitt á undirskriftalista um afnám kílómetragjaldsins.Fólk hefur meðal annars gagnrýnt gjaldið á þeim forsendum að áætlaður akstur sé rangur, það sé rukkað of mikið miðað við skráðan akstur eða að gjaldið sé einfaldlega nýr skattur.Við tökum auðvitað mjög alvarlega þá óánægju sem er með þetta og höfum unnið ötullega með skattinum í að bæta framkvæmdina þannig að þetta sé hnökraminna,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra í Morgunútvarpinu á Rás 2.Ruglingur og mannleg mistökGjaldið hafi verið hannað þannig að framkvæmdin yrði svipuð og að greiða fyrir rafmagn, með fáum aflestrum og áætlaðri notkun þess á milli.Það sem gerist þegar gjaldið er lagt á er að mjög margir fara að lesa þetta mjög reglulega.“Þá sé meiri hætta á mannlegum mistökum þegar fólk skráir kílómetrafjölda.
Þar að auki valdi ýmislegt innan laganna ruglingi. Til að mynda sé áætluðum kílómetrafjölda skipt niður eftir mánuðum en síðar sé sú áætlun leiðrétt til að endurspegla dagafjölda í hverjum mánuði. Þess vegna sé fólk ekki rukkað um sömu upphæð í hverjum mánuði.Það borga allir jafn mikið“Daði Már vísar á bug gagnrýni um að kílómetragjaldið sé nýr skattur.Ríkið er ekki að hagnast neitt á þessu. Þetta fór bara úr því að vera rukkað við dæluna, sem er auðvitað einfalt kerfi en hafði þann galla að eyðslufrekari bílar greiddu meira fyrir að nota vegina. Við erum með sérstök gjöld á því.“Rökin fyrir því að taka upp kílómetragjaldið hafi ekki breyst þrátt fyrir hnökra við framkvæmdina.Það að fara til baka aftur þýðir þá að við ætlum að viðurkenna þá ósanngirni sem var í gamla kerfinu. Þetta kerfi er, þrátt fyrir allt, þannig að það borga allir jafn mikið fyrir að nota vegina,“ segir Daði Már.En við tökum mjög alvarlega, þetta með framkvæmdina, og höfum tekið það mjög föstum tökum.“Tugþúsundir hafa sett nafn sitt á undirskriftalista um afnám kílómetragjaldsins. Fjármálaráðherra segist skilja óánægju með framkvæmdina. Tíðar skráningar auki hættu á mannlegum mistökum og ýmislegt innan laganna valdi ruglingi.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.