0
Reynir að mynda breiða ríkisstjórn þvert yfir miðju
April 13, 2026
RÚV
Mette Frederikssen, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins í Danmörku og handhafi ríkisstjórnarmyndunarumboðsins, ætlar að kanna hvort hægt sé að mynda breiða ríkisstjórn þvert yfir miðju. Í færslu sem hún birti á Facebook í gær sagði hún að fundir væru ráðgerðir með hægriflokknum Venstre og Íhaldsflokknum í vikunni.Frederiksen sagði að hún sé sannfærð um að miðju-vinstri ríkisstjórn eigi mikla möguleika og þær viðræður haldi áfram í næstu viku en fleiri viðræður væru í farveginum.
Á sama tíma aukum við viðræður við Venstre og Íhaldsflokkinn. Sérstaklega varðandi efnahagsmál. Báðir flokkar hafa sagt það skýrt að þeir vilji skýra borgaralega stefnu, án þess að skilgreina það pólitískt. En ég held að Danir búist við ákveðnu raunsæi frá okkur öllum,“ sagði Frederiksen í færslu sinni.Þingflokkur Lars Løkke Rasmussen, Moderaterne, var í lykilstöðu eftir kosningarnar sem voru 24. mars. Á föstudaginn sagði hann að hann ætlaði ekki að halda áfram tilraunum til myndunar næstu ríkisstjórnar Danmerkur nema leiðtogum flokkanna Venstre og Íhaldsflokksins yrði boðið að taka þátt. Rasmussen hvatti Frederiksen til að reyna að mynda stjórn til hægri með Venstre og Íhaldsflokknum, sem Frederiksen virðist ætla að láta reyna á.Poulsen tilbúinn til viðræðna þrátt fyrir fyrri yfirlýsingarTroels Lund Poulsen, leiðtogi hægri-miðjuflokksins Venstre, útilokaði ríkisstjórnarsamstarf með Jafnaðarmannaflokki Frederiksen eftir kosningarnar 24. mars.Poulsen sendi Rasmussen þó ákall á föstudag um að Venstre og Moderaterne gætu sameinast um stefnu í efnahagsmálum. DR, Danska ríkisútvarpið, segir það ástæðu þess að Rasmussen hafi nú sett þessa kröfu í viðræðunum.Jafnaðarmannaflokkurinn, Moderaterne og Venstre voru áður saman í ríkisstjórn. Frederikssen sagði að þrátt fyrir mikla gagnrýni sem sú stjórn hafi fengið þá hafi hún aldrei dregið dul á það að hún hafi verið ánægð með þá ríkisstjórn. Hún segir að saman hafi ríkisstjórnin leitt landið í gegnum erfiða tíma, styrkt öryggis- og varnarmál og fjárfest verulega í velferð og unnið að mörgum umbótum. Hvort hægt sé að gera það aftur og nú með fleiri flokkum í stjórn, ætli þau sér að reyna að finna út úr,“ sagði Frederiksen í færslu sinni.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.