0
Ragnar ósáttur við útskýringar á uppsögn
April 14, 2026
Posted 2 hours ago by
Ragnar Freyr Ingvarsson læknir segir að ekki sé heil brú í skýringum framkvæmdastjóra Landspítala um ástæður þess að honum var sagt upp starfi fyrir skömmu. Þetta skrifar Ragnar í færslu sem hann birti á Facebook í gærkvöld en hann átti fund með Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra spítalans, í gær þar sem Ragnar fékk afhent uppsagnarbréf. Ragnar telur að störf hans sem formaður Læknafélags Reykjavíkur, sem sé stéttarfélag lækna, hafi átt þátt í uppsögninni og að störf hans væru einskins metin.Ragnar staðfestir að honum hafi verið boðið aukið starfshlutfall á spítalanum og þar með falli þau rök niður að starf hans hafi verið lagt niður vegna ríkrar aðhaldskröfu.
Hann segir að sér sé ekki fært að auka við sig starfshlutfall á spítalanum vegna annarra starfa.Ég hefði glaður haldið óbreyttri stöðu líkt og ég hef oft nefnt áður. Ég trúði vart eigin eyrum. Um lögmæti þessa gjörnings verður látið á reyna,“ skrifaði Ragnar í færslunni.Ragnari Frey var sagt upp störfum á Landspítalanum 8. apríl. Hann starfaði sem sérfræðingur í almennum lyflækningum í 33 hlutastarfi. Skýring uppsagnarinnar var sú að uppsögnin tengdist sparnaðarkröfu spítalans.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.