0
Ræða eldsneytislækkun og afnám línuívilnunar
April 13, 2026
RÚV
Fyrsti þingfundur Alþingis eftir páska hefst klukkan þrjú. Þrjú mál eru á dagskrá fundarins sem hefst með óundirbúnum fyrirspurnum. Fyrsta umræða verður um tvö stjórnarfrumvörp. Annað snýr að tímabundinni lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti til að sporna gegn verðbólgu sem ríkisstjórnin kynnti á föstudag. Frumvarpið verður tekið til fyrstu umræðu í dag.
Síðasta málið er frumvarp innviðaráðherra um að fella niður línuívilnun og jöfnunarheimild vegna skel- og rækjukvóta. Frumvarpið hefur sætt gagnrýni. Níu útgerðir á Vestfjörðum sögðu hættu á verulegri byggðaröskun. Ráðherra segir ívilnunina hafa verið tímabundna ráðstöfun fyrir áratugum.Borð þingmanns í þingsalnum.RÚV / Ragnar Visage
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.