0
Ráðherra sagði af sér – Telur stjórnina hafa brugðist Írum
April 16, 2026
Posted 2 hours ago by
Aðstoðar landbúnaðarráðherra Írlands, Michael Healy-Rae, sagði af sér í gær og sagði ríkisstjórnina hafa brugðist Írum. Fjölmenn mótmæli gegn hækkandi eldsneytisverði hafa verið á Írlandi síðustu daga. Bændur og flutningabílstjórar hafa fjölmennt í mótmælin.Healy-Rae sagði af sér sama dag og þingið greiddi atkvæði um tillögur stjórnarandstöðuflokksins Sinn Fein um vantraust á hendur ríkisstjórninni.
Hann sagðist ekki geta greitt atkvæði með trausti á stjórnina. RTÉ, ríkisútvarp Írlands, hefur eftir ráðherranum fyrrverandi að hann hafi séð fullorðna menn gráta yfir eldsneytisverðinu, hann hefði því ekki annan kost en að fara úr stjórninni. Ríkisstjórnin stóð af sér atkvæðagreiðslu um vantraust með 92 atkvæðum gegn 78.Dísilolía hefur hækkað um 28 prósent á Írlandi og bensín um 25 prósent síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran, sem lokaði Hormússundi. Sundið er mikilvæg siglingaleið fyrir olíuflutninga. Bændur og bílstjórar segja hækkunina hafa komið sérlega illa við þá.Ríkisstjórnin tilkynnti 12. apríl um tímabundnar skattalækkanir á eldsneyti fram í júlí. Þá verður hækkun á kolefnisskatti frestað en það hefur ekki dugað til.Mótmælendur hafa lokað fjölförnum vegum, eldsneytisbirgðastöðvum og höfnum. Þegar þeir lokuðu einni helstu götu miðborgar Dublinar, O´Connell Street, um síðustu helgi var lögregla send á vettvang. Hún beitti piparúða gegn mótmælendum og minniháttar átök brutust út.Al Jazeera hefur eftir Patrick Bresnihan, sérfræðingi við Maynooth-háskóla á Írlandi, að mótmælin varpi ljósi á djúpstæðan ójöfnuð í landbúnaðarkerfinu, sérstaklega í mjólkurbúskap og nautgriparækt sem snúist að miklu leyti um framleiðslu til útflutnings. Þá hafi viðbrögð stjórnvalda og fjölmiðla við mótmælunum endurspeglað gjá milli dreifbýlis og þéttbýlis á Írlandi. Lítll skilningur sé á uppbyggingu landbúnaðarkerfisins sem verði að teljast sérstakt í ljósi þess hversu stór atvinnugrein landbúnaður sé.Forsætisráðherra Írlands, Micheál Martin, hefur hvatt mótmælendur til að hætta að koma saman og láta fulltrúa sína um viðræður við stjórnvöld.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.