Ódýrustu páskaeggin er að finna í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ á páskaeggjum. Verð á páskaeggjum hefur hækkað hvað minnst í verði á milli ára í Prís og Fjarðarkaupum.Hækkunin var þó ívið meiri í Bónus, Krónunni og Nettó en verð á páskaeggjum hækkaði um 9 í þeim verslunum milli ára og um 10 í Hagkaup.Prís var að jafnaði með lægsta verð á páskaeggjum samkvæmt verðlagseftirlitinu. Páskaeggin voru næstódýrust í Bónus, en verðið er þó að meðaltali 4 hærra þar en í Prís. Páskaeggin í Krónunni kostuðu öll einni krónu meira en í Bónus, og 26 páskaegg af 39 voru á sama verði í Krónunni og Fjarðarkaupum.Þegar rýnt var í kílóverð á einstökum páskaeggjum var lægsta kílóverðið á Okkar eggi númer 4 í Prís, en þetta 250 gr páskaegg kostar 1.099 kr. Þetta er breyting frá því á síðasta ári þegar bestu kaupin voru í stórum eggjum. Í öðru sæti var Góu páskaegg nr. 11 í Prís og í þriðja sæti yfir lægsta kílóverðið í ár var Bónus risaegg.Verð á páskaeggjum hefur hækkað mismikið hjá framleiðendum milli ára. Verð á Bónus páskaeggjum hefur hækkað mest eða um 37 frá 2024. Bónus páskaegg eru framleidd af Góu en Góu-egg hækkuðu að meðaltali um 31. Þá hækkaði verð á Sanbó páskaeggjum um 33 á sama tíma, en engin hækkun hefur verið á þeim eggjum frá því í fyrra. Verð á páskaeggjum frá Nóa Síríus hækkaði minnst eða um 13.Hætt er við að valkvíði geti hamlað einhverjum við val á páskaeggjum í ár. Alls voru 53 páskaegg í sölu í vefverslun Krónunnar, og í verslunum Hagkaupa. Þá voru 48 tegundir páskaeggja til sölu í Nettó, 47 til sölu í Bónus, 43 í Fjarðarkaupum og 41 tegund í Prís. Minnsta úrvalið var í Kjörbúðinni og Extra, eða 7 páskaegg í hvorri verslun þegar verðlagseftirlitið fór á vettvang.ASÍ bar saman meðalverð á páskaeggjum í mars 2024, 2025 og í ár fyrir könnunina. Verð var athugað og borið saman milli verslana á nokkrum dögum í mars. Hægt er að nálgast nýjustu tölur og vörulista í heild sinni á Verðlagseftirlit.is
March 27, 2026