0
„Platan eyddist af tölvunni“
April 19, 2026
Posted 3 hours ago by
Bræðurnir Alexander og Jakob Grybos segjast hafa spilað mikið tónlist saman í gegn um tíðina, þá oft í boðum. Þrátt fyrir að við séum í mismunandi tónlistarsenum, þú í djassi og ég í klassík, þá spilum við oft saman,“ segir Jakob.Alexander segir Grýbos vera fyrst og fremst tilraunaverkefni sem hófst í stúdíóinu og að í upphafi hafi þeir ekki verið með plötu í huga.
Hægt og rólega mótaðist þó hugmynd að plötu og fóru þeir þá að semja lög fyrir hana frekar en að vera að leika sér.Það leið þó ekki að löngu að þeir stækkuðu sveitina. Af hverju ekki að bæta fleiri vinum inn í prójektið,“ segir Alexander en þeir Hlynur Sævarsson og Magnús Már Newman bættust þá við verkefnið.Fyrsta lag sveitarinnar kom út í mars 2025, rúmu ári áður en þeir gáfu út annað lagið sitt. Alexander viðurkennir að það hafi frekar leitt óhapp ollið þessari bið. Það kom nefnilega fyrir að platan eyddist af tölvunni þeirra. Það var alveg hræðilegt,“ segir hann en sem betur fer höfðu þeir hljómjafnað eitthvað af lögunum sem björguðust í kjölfarið. Þrjú lög fóru alveg í vaskinn,“ viðurkennir hann.Hann hringdi í mig klukkan ellefu um kvöldið eitthvað, Jakob, platan er horfin,“ segir Jakob en hann brunaði þá til Keflavíkur til Alexanders og voru þeir til þrjú um nóttina að reyna að endurheimta plötuna. Það var hringt í allskonar tölvusérfræðinga,“ segir Alexander en það dugaði ekki til. Þeir gáfust þó ekki upp á plötunni og stefna á að hún komi út í haust.Hljómsveitin heldur tónleika í Hljómahöllinni í Keflavík þann 22. apríl og verður þá í stærri mynd en nokkru sinni áður en það verða að mesta lagi tíu manns á sviðinu, segja bræðurnir. Hljómsveitinni var bent á möguleikann að sækja um styrk hjá Reykjanesbæ fyrir tónleikunum og fengu hann sem gerði þeim kleift að halda þá.Þetta verða þó ekki fyrstu tónleikar þeirra, hljómsveitin kom fram í hljómsveitakeppninni Allra veðra von sem var upprunalega haldin í Vestmannaeyjum á árunum 2002 til 2008 en var endurvakin 2024. Þeir komust að viðburðinum þegar þeir fengu auglýsingu á Facebook. Ég vissi ekki að þetta væri keppni og ekki þungarokkskeppni,“ segir Alexander en hann sótti um að taka þátt án þess að segja restinni af sveitinni frá. Það borgaði sig þó svo sannarlega að hafa sótt um því sveitin hreppti annað sæti.Grýbos stíga á svið í heimabæ sínum í Hljómahöll þann 22. apríl. Hægt er að finna miða á tix.is/en/event/21273/grybosFjallað var um Grýbos í Ólátagarði á Rás 2. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir neðan.Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos. Ólátagarður á Rás 2 spjallaði við þá bræður um hljómsveitina og væntanlega plötu.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.