Pétur kynnti kosningaáherslur Samfylkingarinnar
0
World

Pétur kynnti kosningaáherslur Samfylkingarinnar

April 18, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, kynnti kosningaáherslur framboðsins við opnun kosningamiðstöðvar í miðborginni í dag. Áherslurnar bera yfirskriftina Nýjar áherslur – sama markmið: Borg fyrir fólk.Í samtali við fréttastofu að fundinum loknum sagði Pétur baráttuna nú formlega hafna og kvaðst spenntur fyrir mánuðinum fram undan.Það er mjög gaman að hitta fólk og hlusta á það sem brennur á borgarbúum og það er ótrúlega gaman að heyra hvað borgarbúar eru ánægðir með hverfin sín og í rauninni með borgina.

Pétur kynnti kosningaáherslur Samfylkingarinnar

En öll benda þau á að það sé kominn tími á breytingar og ég held að við séum að svara kallinu. Ég er náttúrulega nýr í þessu en mér finnst þetta rosalega gaman og þau gefa mér orku, hópurinn minn í Samfylkingunni.Vilja einfalda leyfisveitingarHelstu áherslur framboðsins eru meðal annars fjölgun leikskólaplássa um 1.500 og að réttur barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi foreldra verði lögfestur. Þá er aukinn stuðningur við grunnskóla og íslenskukennslu barna af erlendum uppruna einnig boðaður.Við erum að setja málefni barna efst á baug, við viljum laga leikskólamálin með því að fjölga leikskólaplássum og einfalda líf fjölskyldna með börn, hvort sem þau eru í leikskólum eða grunnskólum,“ segir Pétur.Við munum leggja líka áherslu á hverfin og styrkja hverfin og einfalda regluverkið hjá borginni þannig að það sé auðvelt að stunda viðskipti í Reykjavík og fjárfesta í Reykjavík.Ein af áherslum framboðsins er einföldun leyfisveitinga til rekstrar og framkvæmda, með því að stytta biðtíma og að fyrirtæki fái einn tengilið til samskipta við borgina.Samfylkingin í Reykjavík stendur með uppbyggingu Borgarlínunnar og hyggst styðja við óhagnaðardrifna uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More