Advertisement
Páskavikan var Jesú frá Nasaret erfið
World

Páskavikan var Jesú frá Nasaret erfið

April 3, 2026
RÚV
Scroll

Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands fer víða um páskana til að predika eða vera viðstödd páskaguðþjónustur eins og vera ber á þessari heilögu hátíð kristinna manna.Hún predikaði í Selfosskirkju á pálmasunnudag þegar kirkjan fagnaði 70 ára afmæli sínu. Páskahátíðin var stór hluti ræðunnar en þar talaði biskup m.a. um hvað páskavikan hafi alltaf verið erfið Jesú frá Nasaret.En hún byrjaði vel, hún byrjaði á því að hann reið inn í Jerúsalem við fagnaðaróp fólksins, fagnaðarlæti, sem síðan breyttust í reiði oft því hann stóðst ekki væntingar,” sagði biskup og hélt áfram.Þegar Jesús kemur í Jerúsalem ríðandi á asna þá tekur hann afstöðu gegn veraldlegum völdum og stríðsrekstri.

Páskavikan var Jesú frá Nasaret erfið

Hesturinn táknaði völd og hermennsku á meðan asninn er svo lítill að þegar fullorðin manneskja situr asna ná fæturnir næstum því niður og hún er í augnhæð við þau sem ganga í kring”.Þannig hafi Jesú komið inn í Jerúsalem, ekki á tignarlegum hesti eins og konungur eða hermaður, heldur sitjandi á asnanum og mætt þar augnaráði fólksins.Í predikuninni fjallaði biskup líka um stríðin og ógnina víða í heiminum, sem færast sífellt nær og nær okkur, og að þá sé mikilvægt að muna eftir Kristi, sem kemur í heiminn sem lítið barn og mætir okkur síðan í augnhæð.Hann er friðarhöfðingi en ekki stríðsguð. Hann tók ekki þátt í pólitísku plotti og vildi ekki gerast veraldlegur leiðtogi. Þannig er guð,” sagði biskup.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More