Páfi segist ekki óttast Trump
0
World

Páfi segist ekki óttast Trump

April 13, 2026
RÚV
Scroll

Leó XIV páfi segist ekki óttast stjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og að hann ætli að halda áfram að tala gegn stríði. Bandaríkjaforseti gagnrýndi páfa í samtali við blaðamenn í gær og í langri færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Það gerði Trump eftir að páfi bað fyrir friði á laugardag.Leó hélt í dag í sína fyrstu heimsókn til Afríku. Hann ræddi við fjölmiðla um borð í flugvél sinni á leiðinni til fyrsta áfangastaðarins, Alsír.

Páfi segist ekki óttast Trump

Ég er ekki stjórnmálamaður,“ sagði Leó við fjölmiðla og bætti því við að hann hefði engan áhuga á að rökræða við Donald Trump. Hann myndi þess í stað halda áfram flytja boðskap friðar.Hefur gagnrýnt innflytjendastefnu TrumpsBiskupar kaþólsku kirkjunnar, til að mynda á Ítalíu og í Bandaríkjunum, hafa komið Leó til varnar eftir gagnrýni Trumps. Leó er fyrsti páfinn sem kemur frá Bandaríkjunum. Trump sagði Leó hafa fengið embættið einmitt vegna þess að hann væri frá Bandaríkjunum, kaþólska kirkjan hefði talið hann bestan til að eiga við Bandaríkjaforseta. Ef ég væri ekki í Hvíta húsinu þá væri Leó ekki í Páfagarði,“ ritaði Trump.Leó páfi er ekki andstæðingur Trumps, né heldur stjórnmálamaður. Hann er umboðsmaður Krists,“ segir í yfirlýsingu bandaríska erkibiskupsins Paul Coakley frá því í gær.Leó hefur í nokkrum ávörpum sínum nýtt tækifærið til að fordæma átök og stríð. Hann hefur einnig hvatt til þess að dregið verði úr hernaðaraðgerðum í Mið-Austurlöndum. Þegar Trump hótaði því að heil siðmenning yrði þurrkuð út ef Íranar myndu ekki semja við Bandaríkjamenn um opnun Hormússunds sagði Leó orð forsetans vera með öllu óásættanleg“. Þá hefur páfinn einnig gagnrýnt harða innflytjendastefnu Trumps.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More