Óskar Hrafn hissa á því að vera eftirsóttastur
April 9, 2026
RÚV
Besta deild karla í fótbolta hefst á föstudag og eftirvæntingin orðin mikil. Í gær var spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna birt. Þar kom sjálfsagt fáum á óvart að ríkjandi Íslandsmeisturum Víkings hafi verið spáð efsta sæti og nýliðum Keflavíkur og Þórs spáð neðstu tveimur. KR-ingum er svo spáð fjórða sæti, þrátt fyrir að hafa verið í bullandi fallbaráttu á síðasta tímabili.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari liðsins, segir liðið eiga margt inni eftir krefjandi tímabil í fyrra og að það komi heilsteyptara inn að þessu sinni.Einhverjir sáu að spilamennska okkar síðasta sumar hafi ekki verið þess eðlis að við hefðum ekki átt að enda í tíunda sæti. Þú getur sagt að taflan ljúgi ekki og að þú fáir það sem þú átt skilið en ég myndi halda að menn teldu að við ættum eitthvað inni.“Þá hefur KR átt gott undirbúningstímabil þar sem liðið hefur slípast vel saman. Ekki sé þó alfarið búið að stoppa í götin í vörninni því liðið fær enn á sig þó nokkur mörk en þó gengur vel að skora. Að einhverju leyti snýst þetta um að skora fleiri mörk en andstæðingurinn.“Óskar Hrafn segir að nú þurfi liðið að sanna sig. Okkur var spáð góðu gengi í fyrra en það raungerðist ekki. En okkar vinna verður að sýna að við séum verðugir þessa sætis eða ofar. Það gerist samt ekki með því að standa fyrir framan þig og halda einhverja ræðu, það gerist á vellinum.“ Spáin í heild sinni VíkingurBreiðablikStjarnanKRÍAValurKAFramFHÍBVKeflavíkÞórSterk bein sem halda inn í nýtt tímabilÞá hefur liðið fengið góðan liðsstyrk hjá Arnóri Ingva Traustasyni en leikmannahópurinn er að öðru leyti að mestu sá sami og í fyrra. Það segir Óskar jákvætt. Liðið sé sterkara andlega, skilvirkara og heilsteyptara. Það þurfti sterk bein til að þola þá stöðu sem við vorum í og brotna ekki. Leikmenn koma reynslunni ríkari út úr því.“Eftirsóttastur og hissaÍ könnun sem gerð var meðal leikmanna Bestu deildar reyndist Óskar Hrafn eftirsóttasti þjálfarinn. Það kom honum á óvart. Ég er bara hissa. Og auðvitað stoltur. Þetta er íþrótt leikmanna, við þjálfararnir erum bara þarna til að leiðbeina. Ég tek þessu sem hrósi en er hissa. Ég er uppi á móti mönnum eins og Rúnari Kristinssyni sem ég held að flesta dreymi um að spila fyrir.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.