0
Orrustuþotur rákust á vegna myndatöku flugmanna
April 22, 2026
Posted 2 hours ago by
Yfirvöld í Suður-Kóreu hafa að undangenginni rannsókn komist að þeirri niðurstöðu að tvær orrustuþotur hafi rekist á í flugi árið 2021 vegna þess að flugmennirnir voru að taka myndir.Flugmennirnir voru á leið til baka úr herflugi skammt frá borginni Daegu þegar þetta gerðist. Þeir sluppu ómeiddir en flugvélarnar stórskemmdust.Annar flugmaðurinn var í sínu síðasta flugi fyrir herinn.
Hann var í aftari vélinni þegar hann byrjaði að taka myndir og myndskeið á símann sinn til að eiga til minningar um flugið. Talið er að flugvélarnar hafi þá verið á hátt í 600 km hraða. Þegar flugmaður hinnar vélarinnar tók eftir því, bað hann annan flugmann í þeirri vél að taka mynd af þeim sem var að hætta, hækkaði svo flugið og sneri vél sinni svo að hann fengi betra sjónarhorn á vél þess sem var að hætta. Eftir það voru vélarnar mjög nálægt hvor annarri. Flugmaðurinn reyndi að lækka flugið aftur til að forðast árekstur en það tókst ekki og vængur vélar hans rakst í stélsenda hinnar vélarinnar.Sagði þögult samþykki hafa legið fyrirÞessi flugmaður var rekinn úr starfi og vinnur nú í farþegaflugi. Hann viðurkenndi að snúningur hans hefði valdið árekstrinum en sagði á móti að hinn flugmaðurinn hefði samþykkt þetta með þögninni þar sem hann hefði vitað að myndataka væri í gangi.Suðurkóreski flugherinn hafði krafist þess að flugmaðurinn greiddi jafnvirði ríflega 70 milljóna íslenskra króna í sekt, en samkvæmt dómsúrskurði þurfti hann aðeins að greiða rúmar 7 milljónir. Dómurinn taldi að flugherinn bæri töluverða ábyrgð fyrir að setja flugmönnum sínum ekki skýrar reglur um notkun myndavéla. Þá hefði flugmaðurinn átt flekklausan feril fram að þessu.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.