Orri Steinn skoraði tvö mörk í jafntefli gegn Kanada
World

Orri Steinn skoraði tvö mörk í jafntefli gegn Kanada

March 28, 2026
RÚV
Scroll

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætti Kanada í vináttuandsleik í Torontó í kvöld. Nú er opinber landsleikjagluggi svo Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari gat stillt upp sterku liði en Albert Guðmundsson fékk þó frí frá þessu verkefni til að jafna sig af meiðslum.Kanada er ein af gestgjafaþjóðunum á HM í sumar og er leikurinn liður í undirbúningi Kanadamanna fyrir heimsmeistaramótið.

Orri Steinn skoraði tvö mörk í jafntefli gegn Kanada

Kanada er í 29. sæti heimslistans en Ísland í 74. sæti. Leikið var á BMO Field leikvanngum þar sem Ísland mætir líka Haítí á þriðjudaginn n.k. en Haítí er líka í undirbúningi fyrir HM.Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson sneri aftur í landsliðið eftir langa fjarveru vegna meiðsla og hann hélt upp á það með því að skora tvö mörk í fyrri hálfleik en Ísland var 0-2 yfir að honum loknum. Orri skoraði fyrra markið á 9. mínútu eftir klaufamistök í vörn Kanada og seinna markið skoraði hann með föstu skoti eftir laglega skyndisókn á 22. mínútu.Kanada jafnaði úr vítaspyrnumSkömmu eftir að Kanadamenn fengu dauðafæri í seinni hálfleik sem Elías Rafn Ólafsson varði í íslenska markinu fékk Mikael Egill Ellertsson dæmda á sig vítaspyrnu á 65. mínútu. Jonathan David skoraði og minnkaði muninn í 1-2.Heimamenn höfðu talsverða yfirburði í seinni hálfleik og uppskáru aðra vítaspyrnu á 74. mínútu sem dæmd var á Hörð Björgvin Magnússon. Aftur tók David vítið og sendi Elías Rafn aftur í rangt horn og jafnaði í 2-2.Kanadamenn voru mjög ákafir og pressuðu íslenska liðið hátt en kappið bar þó fegurðina ofurliði hjá Tajon Buchanan sem fékk beint rautt spjald á 81. mínútu fyrir olnbogaskot í Mikael Egil. Íslendingar léku því restina af leiknum manni fleiri.Ísland fékk gott og langþráð marktækifæri í uppbótartíma en Brynjólfur Willumsson skaut boltanum í markmanninn úr þröngu færi og 2-2 jafntefli varð niðurstaðan.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More