0
Orri í afar fámennan hóp Íslendinga
April 20, 2026
Posted 2 days ago by
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er kominn í fámennan hóp íslenskra fótboltakappa eftir að hann varð spænskur bikarmeistari í gær. Lið hans Real Socieded hafði betur á móti Atlético Madríd eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum.Nú hafa aðeins fimm íslenskir fótboltamenn afrekað að vinna aðalbikarkeppni í landi sem talið er hafa eina af fimm bestu deildum Evrópu.
Það er iðulega talað um England, Spán, Þýskaland, Ítalíu og Frakkland sem topp fimm deildir Evrópu.Þá varð Orri aðeins annar Íslendingurinn til að vinna spænsku bikarkeppnina á eftir Eiði Smára Guðjohnsen sem varð bikarmeistari með Barcelona árið 2009. Þetta er jafnframt fyrsti titill Íslendings í topp fimm landi síðan þá. Sautján ár liðu þar á milli.Hverjir eru hinir?Hinir fjórir sem hafa afrekað þetta eru Lárus Guðmundsson, Ásgeir Sigurvinsson, Hermann Hreiðarsson og áðurnefndur Eiður Smári. Myndir af fögnuði þeirra má sjá hér að neðan.BikartitlarnirÁsgeir - Bayern München í Þýskalandi - 1982. Liðið vann Nurnberg 4-2.Lárus - Bayer Uerdingen í Þýskalandi - 1985. Liðið vann Bayern München 2-1.Hermann - Portsmouth í Englandi - 2008. Liðið vann Cardiff 1-0.Eiður Smári - Barcelona á Spáni - 2009. Liðið vann Athletic Bilbao 4-1.Orri Steinn - Real Sociedad á Spáni. 2026. Liðið vann Real Sociedad eftir vítaspyrnur.Á morgnana drekkum við kaffi. Á kvöldin er það romm. Farðu með mig til Sevilla. Orri Óskarsson“Þetta syngja stuðningsmenn Sociedad um Orra en úrslitaleikurinn var í Sevilla. Lagið varð til eftir sigurmark hans gegn Alaves í bikarnum.Gripið til vítaspyrnukeppni þar sem Orri brenndi afSocieda vann leikinn eftir vítaspyrnukeppni en Orri brenndi af víti. Staðan var 2-2 eftir framlengingu.Ander Barrenetxea skoraði fljótasta mark í sögu bikarúrslitanna þegar hann kom Sociedad yfir eftir 14 sekúndur með skalla. Ademola Lookman jafnaði fyrir Atletico á 18. mínútu með skoti úr teignum.Mikel Oyarzabal kom Sociedad aftur yfir með vítaspyrnu eftir 45 mínútna leik, undir lok fyrri hálfleiks.Orri kom inn af bekknum tólf mínútum fyrir leikslok og skömmu síðar jafnaði Julian Alvarez metin með góðu skoti. Markið kom á 83. mínútu. Staðan var 2-2 eftir 90 mínútur og því fóru liðin í framlengingu.Staðan var einnig 2-2 eftir framlengingu og því haldið í vítaspyrnukeppni. Musso varði víti Orra sem var annað víti Sociedad. Að lokum tryggði Marin 3-4 sigur Baskaliðsins.Orri hafði áður unnið dönsku deildina og danska bikarinn einu sinni með FC Kaupmannahöfn.Tölfræði Orra í árOrri hefur skorað fimm mörk í 14 leikjum í deildinni í ár. Hann hefur leikið 382 mínútur og er með mark á 76 mínútna fresti.Hann skoraði sigurmarkið gegn Alaves í 8-liða úrslitum bikarsins og þaðan spratt söngurinn um hann sem er hér að ofan. Hann er með eitt mark í fimm leikjum í bikarnum.Alls hefur hann skorað 13 mörk í 56 leikjum fyrir Baskaliðið.Ferill Orra er rétt að byrja en þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall er hann nú kominn í afar fá- og góðmennan hóp í íslenskri fótboltasögu.Vinkillinn er greinaflokkur þar sem leitast er eftir að segja áhugaverðar íþróttasögur frá hinum ýmsu sjónarhornum.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.