Orion-farinu þeytt af sporbaug jarðar í átt til tunglsins í nótt
April 3, 2026
RÚV
Artemis-áhöfnin kveikti í nótt á öflugum eldflaugum Orion-farsins í sex mínútur til að beina því af sporbraut jarðar í átt að tunglinu. Sérfræðingar NASA fylgdust gaumgæfilega með því að öll tæki virkuðu rétt þannig að farið kæmist á rétta braut. Ferðin að tunglinu, sú fyrsta í yfir fimmtíu ár, tekur um þrjá sólarhringa og leiðangurinn umhverfis það um tíu daga alls.
Aðdráttarafl tunglsins er notað til að sveifla farinu umhverfis það og snúa því aftur til jarðar, án þess að beita vélarafli. Áhöfn Artemis II er nú á leið til tunglsins eftir að hafa hringsólað jörðu. Öflugar eldflaugar Orion-farsins þeyttu því af stað í nótt. Ferðin að tunglinu tekur 3 sólarhringa og leiðangurinn alls 10. Forstjóri NASA segir áhöfninni líða vel.Þá hefur áhöfnin, Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jeremy Hansen, haldið lengra út í geim en nokkur annar maður. Búningar geimfaranna geta haldið þeim á lífi í sex daga ef svo ólíklega vill til að þrýstingur fellur í farinu eða leki kemur að því.Tunglskotið frá Kennedy-geimstöðinni á miðvikudag heppnaðist giftusamlega og áhöfnin varði fyrstu klukkustundum ferðarinnar í prófanir og minni háttar viðgerðir á samskiptakerfi og salerni farsins. Orion-far hefur aldrei borið menn út fyrir gufuhvolfið áður. Verkefnin gengu vel og Jared Isaacman forstjóri NASA segir geimförunum líða prýðilega auk þess sem Orion-farið virki nákvæmlega eins og til var ætlast.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.