0
Opinber ævisaga Elísabetar II í smíðum
April 19, 2026
Posted 3 hours ago by
Konungsfjölskyldan breska hefur fengið sagnfræðinginn Önnu Keay til að rita opinbera ævisögu Elísabetar II drottningar sem lést í september 2022 eftir meira en sjötíu ára valdatíð.Karl III konungur hefur ætíð viljað að kona skrifaði endanlega og óyggjandi sögu móður hans, að sögn breskra fjölmiðla. Hirðin segir í yfirlýsingu að Keay fái fullan aðgang að öllum skjölum Elísabetar, jafnt opinberum sem persónulegum, sem varðveitt eru í Konungsskjalasafninu.Hún fái einnig að ræða við alla konungsfjölskylduna, vini drottningar og starfsfólk.
Keay lýsir Elísabetu sem einstakri konu sem lifði öld mikilla umbreytinga. Hún segir konunginn og fjölskylduna alla sýna sér mikinn heiður með því að leita til hennar.Ég er hans hátign afar þakklát fyrir að trúa mér fyrir þessu ábyrgðarmikla verki,“ segir Anna Keay og heitir að gera lífi drottningar og starfi verðug skil.Keay er þekktust fyrir ítarleg sagnfræðirit um Enska samveldið sem var lýðveldi, hið minnsta að nafninu til, á árunum 1649 til 1660. Opinberar ævisögur konungsfjölskyldunnar geta stundum afhjúpað óvæntar upplýsingar um líf viðkomandi.Ævisagan sem blaðamaðurinn William Shawcross skrifaði um móður Elísabetar, eiginkonu Georgs VI Bretakonungs, og kom út 2009 leiddi í ljós hvernig hún þjáðist af ristilkrabbameini á sjötugsaldri en náði góðum bata. Elizabeth Angela Marguerite Bowes-Lyon lést 2002, 101 árs að aldri.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.