OPEC+ ríkin hækka framleiðslukvóta fyrir hráolíu í maí
World

OPEC+ ríkin hækka framleiðslukvóta fyrir hráolíu í maí

April 6, 2026
RÚV
Scroll

Helstu olíuframleiðsluríki heims, OPEC+ ríkin, hafa sammælst um að auka olíuframleiðslu frá því í maí um 206 þúsund tunnur á dag. Rússar og Sádi Arabar eru þarna á meðal auk nokkurra Persaflóaríkja sem hafa mátt þola þungar árásir frá Íran.Í sameiginlegri yfirlýsingu segja ríkin viðgerðir á löskuðum olíuvinnslustöðvum kostnaðarsamar og taka langan tíma.

OPEC+ ríkin hækka framleiðslukvóta fyrir hráolíu í maí

Tjónið leiði af sér óstöðugleika á mörkuðum og geti dregið úr framboði á olíu til nokkurrar framtíðar.Ríkin áréttuðu jafnframt mikilvægi óhindraðra siglinga með olíu og gas um alþjóðleg hafsvæði. Íransstríðið er lykilþáttur í ákvörðun OPEC-ríkjanna, þótt þau nefndu það ekki sérstaklega í yfirlýsingu sinni.Orkuverð hefur hækkað um víða veröld vegna samdráttar í framleiðslu og lokunar Hormússunds, frá því Ísrael og Bandaríkin hófu styrjöldina 28. febrúar. Tunnan af West Texas Intermediate fór í 113,62 bandaríkjadali í morgun og Brent-Norðursjávarolía í 110,30 dali.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More