Ólympíufararnir bæði fjórfaldir Íslandsmeistarar
World

Ólympíufararnir bæði fjórfaldir Íslandsmeistarar

March 30, 2026
RÚV
Scroll

Ræst var í sprettgöngunni í morgun og vel viðraði á Ólafsfirði. Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson, sem bæði kepptu í skíðagöngu á Ólympíuleikunum á Ítalíu í vetur, voru áfram í broddi fylkingar. Dagur kom í mark á tveimur mínútum og 29,48 sekúndum, rúmum sjö sekúndum á undan næsta - Snorri Einarsson varð annar. Kristrún hafði yfirburði í kvennaflokki en hún kom í mark á þremur mínútum og 4,31 sekúndu.Bæði unnu þau gullið, hvor í sínum flokki en unnu einnig liðasprettinn.

Ólympíufararnir bæði fjórfaldir Íslandsmeistarar

Dagur með Grétari Smára Samúelssyni og Kristrún með Maríu Kristínu Ólafsdóttur. Dagur og Kristrún eru því bæði fjórfaldir Íslandsmeistarar eftir mótið.Góður endir á erfiðu tímabiliÞetta er skemmtilegur endir á erfiðu tímabili. Þetta byrjaði svolítið illa, ég var meidd í fyrra og var lengi að koma mér í gang. Ég er á uppleið núna og örugglega í mínu besta formi á tímabilinu núna þannig þetta er mjög sætt,“ sagði Kristrún eftir mótið.Markmiðið að taka fjóra enn eina ferðinaDagur segist hafa tekið daginn taktískt enda tvær keppnir á dagskrá og því gott að huga að orkunni. Taktíkin virðist hafa gengið vel hjá honum því hann fagnaði titli í báðum greinum. Þá náði hann einnig sínu markmiði á mótinu. Þetta var stóra markmiðið. Það eru komin þrjú ár í röð þar sem ég tek alla fjóra. Þetta er mjög sætt að ná þessu.“Íslandsmótinu í skíðagöngu lauk í dag og lokagreinin var sprettganga. Enn voru ólympíufararnir í fararbroddi. Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson urðu fjórfaldir Íslandsmeistarar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More