Olíuverð hækkar enn í skugga hótana Bandaríkjaforseta um stórfelldar árásir á innviði Írans
World

Olíuverð hækkar enn í skugga hótana Bandaríkjaforseta um stórfelldar árásir á innviði Írans

April 6, 2026
RÚV
Scroll

Verð á hráolíu hefur hækkað talsvert þegar markaðir voru opnaðir í morgun. Tunnan af West Texas Intermediate fór í 113,62 bandaríkjadali og Brent-Norðursjávarolía í 110,30 dali.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið írönskum stjórnvöldum frest fram á þriðjudag til að semja um stríðslok og opna siglingaleiðina um Hormússund, ella verði lagt til atlögu að orku- og samgönguinnviðum landsins.Þetta verður engu líkt,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðilinn Truth Social í gær áður en hann sagði í viðtali á Fox góðar líkur á að Íranar óskuðu eftir samkomulagi þegar í dag, mánudag.Miðstjórn Íranshers hótar enn geigvænlegri hefndaraðgerðum verði ráðist til atlögu að borgaralegum innviðum.

Olíuverð hækkar enn í skugga hótana Bandaríkjaforseta um stórfelldar árásir á innviði Írans

Yfirlýsing þess efnis var birt á Telegram-síðu ríkismiðilsins IRIB í dag.Komið er á sjöttu viku síðan Bandaríkin og Ísrael hófu loftárásir á Íran. Síðan þá hafa átökin breiðst út um Mið-Austurlönd og sett efnahag heimsins í verulegt uppnám.Íranar hafa nánast alveg lokað Hormússundi þar sem flutningaskip sigla með um fimmtung gas- og olíuframleiðslu heimsins á friðartímum. Lokunin hefur leitt af sér verulega hækkun á eldsneytisverði.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More