Ökumenn hvattir til að vera ekki á ferðinni
March 28, 2026
RÚV
Vegir til og frá höfuðborgarsvæðinu hafa verið settir á óvissustig vegna hvassviðris, storms og snjókomu síðar í dag og í kvöld. Óvissustig tekur gildi ýmist klukkan 16 eða 17. Þetta á við um Reykjanesbraut, Hellisheiði, Mosfellsheiði og Vesturlandsveg um Kjalarnes.Gul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan sex síðdegis og gildir hún til klukkan tíu.
Á sama tíma taka gular viðvaranir einnig gildi í flestum öðrum landshlutum, að Norðausturlandi og Austfjörðum undanskildum.Samkvæmt tilkynningu aðgerðarstjórnar höfuðborgarsvæðisins er viðbúið að færð spillist á meðan veðrið gengur yfir. Færð getur sömuleiðis spillst innan höfuðborgarsvæðisins, ekki síst í efri byggðum.Fólki sem þarf að vera á ferðinni er góðfúslega bent á að gera slíkt áður en veðrið skellur á eða eftir að því slotar.Töluverð snjókoma fylgir veðrinu og því ættu ökumenn að hugsa sig vel um áður en farið er af stað, en aðstæður gætu orðið þannig að slíkt sé aðeins á færi þeirra sem eru á vel búnum bílum til vetraraksturs,“ segir í tilkynningunni.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.