0
Ógilti samruna Ferro Zink og Metal
April 17, 2026
Posted 3 hours ago by
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að samruni fyrirtækjanna Ferro Zink og Metal skuli ógiltur því hann myndi auka samþjöppun á mörkuðum smíðamálma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.Ferro Zink og Metal eru á meðal fárra fyrirtækja hérlendis sem sérhæfa sig í innflutningi og sölu á smíðamálmum.Samkeppniseftirlitið segir rannsókn hafa leitt í ljós að samruninn myndi skapa markaðsráðandi stöðu á mörkuðum fyrir ryðfrítt stál og ál, auka samþjöppun og fækka burðugum keppinautum.Þá myndi einokunarstaða Ferro Zink á markaði fyrir svokallaða heitsinkhúðun styrkjast og festast í sessi og hindranir fyrir nýja keppinauta yrðu auknar.Samkeppniseftirlitið telur líklegt að samruninn leiði til hærra verðs og lakari þjónustu fyrir viðskiptamenn.
Ekki hafi verið sýnt fram á að mögulegur ávinningur af samrunanum vegi upp á móti skaðlegum áhrifum á markaði eða skili sér til neytenda.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.