Ódýrustu páskaeggin í Prís samkvæmt verðlagsúttekt ASÍ
March 29, 2026
RÚV
Nú styttist í páskana og hver fer að verða síðastur að næla sér í páskaegg.Eggin hafa hækkað mismikið í verði hjá framleiðendum á milli ára. Ódýrustu páskaeggin eru í Prís, samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ.Hætt er við að valkvíði geti hamlað einhverjum við val á páskaeggjum í ár. Alls voru 53 páskaegg í sölu í vefverslun Krónunnar, og í verslunum Hagkaupa.
41 tegund var í sölu í Prís þegar könnunin var gerð.Páskaegg af öllum stærðum og gerðum fylla nú hillur verslana. Ódýrustu páskaeggin eru í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Verð á páskaeggjum sem merkt eru Bónus hækka mest milli ára.Lækka verð í samræmi við lægstu verð annars staðarRakel Másdóttir, verðstýringar- og verkefnastjóri hjá Prís, segir verslunina leggja upp úr góðum samningum við birgja og fylgjast vel með markaðnum. Verð séu lækkuð í samræmi við lægsta verð annars staðar.Og hver eru nú vinsælustu páskaeggin hjá ykkur?Vinsælustu páskaeggin eru alltaf þessi hreinu páskaegg. En þar stutt á eftir koma sérpáskaeggin, Rís, Hraun og Nóa Kropps eggin,“ segir Rakel.Þannig að eggin sem eru með lakkrís og alls konar í, þau eru sem sagt ekki búin að ná þessum klassísku eggjum í vinsældum?Nei, ekki ennþá. Hreinu eru vinsælli frá öllum framleiðendum.“Og málshættirnir eru alltaf við lýði er það ekki?Jú, vissulega.“Þeir detta ekkert út?Nei, enda stór þáttur í páskahefðunum.“Páskaegg frá Bónus hafa hækkað mest í verði á milli áraVerð páskaeggja hefur hækkað mismikið eftir framleiðendum. Ef verð eru borin saman við verðin 2024 hefur verð á Bónus páskaeggjum hækkað mest, eða um 36, en verð á páskaeggjum Nóa Síríus hækkað minnst, um 12.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.