Oddvitaumræður RÚV hefjast – 21 sveitarfélag heimsótt
0
World

Oddvitaumræður RÚV hefjast – 21 sveitarfélag heimsótt

April 14, 2026
Scroll

Posted 5 hours ago by

Oddvitaumræður RÚV fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hefja göngu sína í kvöld klukkan 20:50 þegar oddvitar framboðanna sex í Hafnarfirði mætast í sjónvarpi. Umræðunum er jafnframt útvarpað samtímis á Rás 2, auk þess sem þær eru sýndar á ruv.is.Næstu vikur fram að kosningum mætast svo oddvitar tuttugu stærstu sveitarfélaganna, auk Grindavíkur*, í þáttum sem eru á dagskrá tvisvar til þrisvar í viku, bæði í útvarpi og sjónvarpi, ýmist á aðalrás RÚV eða RÚV 2.

Oddvitaumræður RÚV hefjast – 21 sveitarfélag heimsótt

Þetta eru fleiri þættir af þessum toga en RÚV hefur boðið upp á í sveitarstjórnarkosningum til þessa.Í þessu 21 sveitarfélagi búa yfir 90 landsmanna. Öðrum smærri sveitarfélögum verður sinnt með margvíslegum hætti, meðal annars í fréttaumfjöllun, með kosningaprófi sem hleypt verður af stokkunum þegar nær dregur kosningum og með heimsóknum frá samfélagsmiðlafréttamönnum sem ætla að kynna sér það sem helst brennur á heimamönnum.Lokaþáttur oddvitaumræðnanna verður þáttur með oddvitum í Reykjavík, í beinni útsendingu úr sjónvarpssal föstudagskvöldið fyrir kjördag. Þættir með oddvitum annarra sveitarfélaga þar sem búa yfir 20 þúsund manns verða sýndir að kvöldlagi á aðalrás RÚV. Hinum þáttunum verður útvarpað á Rás 1 og 2 á milli 18:05 og 19:00 og sýndir á RÚV 2.*Grindavík var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins þar til bærinn var rýmdur í nóvember 2023 og brottfluttum íbúum gafst kostur á að skrá sig þar á kjörskrá. Óvenjuleg staða bæjarfélagsins gefur auk þess sérstakt tilefni til oddvitaumræðna þar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More