0
Oddaleikur af bestu sort og Valur í undanúrslit
April 19, 2026
Posted 3 hours ago by
Valur fer áfram í undanúrslit um Íslandsmeistaratitil í körfubolta karla eftir að hafa unnið Keflavík í oddaleik. Valur og Grindavík mætast í undanúrslitum. Áhorfendur fjölmenntu á Hlíðarenda í kvöld.Leikurinn var jafn framan af en taugar Valsmanna voru mun sterkari á lokakaflanum. Að lokum unnu þeir fjórtán stiga sigur, 90-76.Keflvíkingar byrjuðu betur og leiddu með fimm stigum eftir fyrsta leikhluta, 17-22.
Keflvíkingar náðu mest átta stiga forskoti í öðrum leikhluta en þá vöknuðu heimamenn til lífs og leiddu sex stigum, 44-38, í hálfleik. Því varð ellefu stiga viðsnúningur í öðrum leikhluta.Allt annað Keflavíkur lið mætti til leiks í þriðja leikhluta en að honum loknum leiddi Valur með tveimur stigum, 65-63.Engin spurning undir lokinValsmenn voru svo í gríðarmiklum ham í fjórða leikhluta. Sigurinn var í raun aldrei í hættu í lokaleikhlutanum og að lokum vannst fjórtán stiga sigur, 90-76.Booker í gírFrank Booker fór fyrir Valsmönnum í stigaskori og stemningu. Hann lauk leik með 29 stig en Keyshawn Woods bætti við 23 stigum.Remy Martin var stigahæstur Keflvíkinga með 23 stig.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.