Ocalan vill ávarpa tyrknesku þjóðina óhindrað
March 31, 2026
RÚV
Abdullah Ocalan, stofnandi aðskilnaðarsamtaka Kúrda, PKK, í Tyrklandi hefur farið fram á að fá að ávarpa almenning óhindrað. Hann hefur setið í fangelsi í Tyrklandi frá árinu 1999 og er haldið þar í einangrun.PKK lagði niður vopn í fyrra eftir að hafa barist fyrir sjálfstæði Kúrda í Tyrklandi í fjóra áratugi. Að minnsta kosti 50 þúsund manns létu lífið í átökunum.
Kúrdar eru um 20 af íbúafjölda Tyrklands.Sendinefnd Jafnréttis og lýðræðisflokksins í Tyrklandi, DEM, sem er hliðhollur Kúrdum, heimsótti Ocalan í fangelsi á föstudag og birti í dag skilaboð frá honum. Þar ítrekar hann skuldbindingu sína við friðarferlið og kveðst telja mikilvægt fyrir sig að geta komið þeim skilaboðum á framfæri við almenning til að fyrirbyggja misskilning. Stjórnvöld í Tyrklandi verði að viðurkenna að engin skemmdarverkastarfsemi sé í gangi og að öryggi ríkisins sé ekki ógnað.Ocalan hvetur þingnefnd, sem sett var á laggirnar til að skilgreina framtíðarstöðu PKK og fyrrverandi liðsmanna samtakanna, til að koma án tafar á fót heildstæðum og inngildandi lagaramma“.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.