Advertisement
Ný lög tvöfalda refsingu við samkynhneigð — alþjóðasamfélagið bregst rólega við
World

Ný lög tvöfalda refsingu við samkynhneigð — alþjóðasamfélagið bregst rólega við

April 2, 2026
RÚV
Scroll

Bassirou Diomaye Faye, forseti Senegal, hefur staðfest lög sem tvöfalda refsingar við samkynhneigð eða brotum gegn náttúrulegu eðli“ eins og það er kallað. Frumvarp þess efnis var samþykkt með miklum meirihluta í þinginu í mars. Fimm til tíu ára fangavist liggur nú við því að eiga í samkynja sambandi en refsingin var eins til fimm ára fangelsi. Þeirra sem fundnir eru sekir um að stuðla að eða fjármagna slík sambönd getur beðið þriggja til sjö ára fangelsi.

Ný lög tvöfalda refsingu við samkynhneigð — alþjóðasamfélagið bregst rólega við

Margir Senegalar telja samkynja sambönd afbrigðileg og stuðning við málstað hinsegin fólks vestrænan innflutning sem brjóti gegn þarlendum gildum. Alþjóðasamfélagið hefur af hálfvelgju brugðist við lagabreytingunni í Senegal öfugt við sambærilegar aðgerðir í öðrum Afríkuríkjum. Amnesty International hefur ekki tjáð sig enn. Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna og UNAIDS báðu Bassirou Faye forseta árangurslaust um að staðfesta ekki lögin og belgískur ráðherra dró í efa hvort fjármagna skyldi áfram samvinnu við Senegal um loftslagsmál. Það ýfði fjaðrir senegalskra ráðamanna. Sérfræðingar sem AFP hefur leitað til telja margt geta skýrt sinnuleysið, allt frá brotthvarfi Bandaríkjanna frá mannúðaraðstoð til þess að Vesturlönd, þar á meðal fyrrum nýlenduherrann Frakkland, vilji ekki styggja nokkuð stöðugt lýðræðisríki og mikilvægan samherja.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More