Njarðvík sópaði Tindastól eftir spennutrylli
April 8, 2026
RÚV
Brittany Dinkins skoraði flautukörfu.RÚV / Mummi LúNjarðvík sópaði Tindastól 3-0 í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta eftir spennutrylli, 88-87.Njarðvík byrjaði betur og leiddi 26-19 eftir 1. leikhluta. Munurinn var sjö stig í hálfleik, 45-38.Gestirnir frá Sauðárkróki kveiktu á sér í þrðija leikhluta og leiddu 57-62 að honum loknum.
Lokasekúndur voru svo æsispennandi þar sem liðin skiptust á að setja niður risaskot á lokasekúndunum. Fyrst setti Hulda María Agnarsdóttir þrist sem kom Njarðvík í 85-84. Madison Sutton svaraði með tveimur stigum og villu að auki. Þá var staðan 85-87 og 1.2 sekúndur eftir. Brittany Dinkis setti þá flautuþrist og Njarðvík vann 88-87.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.