Advertisement
Nærri 200 atvik hjá björgunarsveitum í illviðrinu
World

Nærri 200 atvik hjá björgunarsveitum í illviðrinu

April 7, 2026
RÚV
Scroll

Björgunarsveitir sinntu ýmsum verkefnum í óveðrinu í gær og voru 198 atvik skráð hjá björgunarsveitum og 21 aðgerð. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að vel hafið gengið. Yfir páskahelgina voru skráð 490 atvik og 49 aðgerðir.Ég hugsa að þessi helgi hafi ekki verið frábrugðin öðrum helgum þar sem veðurspáin er eins og hún var fyrir þessa helgi.

Nærri 200 atvik hjá björgunarsveitum í illviðrinu

Þetta er náttúrulega fríhelgi þannig að það eru fleiri á ferðinni en heilt yfir gekk þetta mjög vel,“ segir Jón Þór.328 manns sinntu verkefnum björgunarsveita víða um land í gær en 773 yfir alla páskahelgina. Helstu verkefnin í gær voru foktjón og fastir bílar.Þetta snerist fyrst og fremst um að greiða leið fólks sem var í vandræðum milli byggðalaga yfir fjallvegi þar sem færðin var þung eða jafnvel alveg ófært,“ segir Jón Þór.Þetta gekk stórslysalaust fyrir sig“Veðrið var einna verst á sunnan- og vestanverðu landinu. Hellisheiði og Þrengsli voru lokuð í nokkrar klukkustundir í gær og Reykjanesbrautin í um 40 mínútur.Mikið var um útköll hjá Lögreglunni á Suðurlandi og nokkuð var um aðstoðarbeiðnir vegna foktjóns í Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum. Björgunarsveitir voru til taks í Grindavík.Þetta gekk stórslysalaust fyrir sig,“ segir Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum. Aðgerðastjórn var hins vegar virkjuð til að gæta fyllsta öryggis, bæði vegna óveðursins en líka vegna Grindavíkur.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More