Advertisement
Nær óhugsandi að Framsókn detti út af þingi
World

Nær óhugsandi að Framsókn detti út af þingi

April 2, 2026
RÚV
Scroll

Framsóknarflokkurinn er í algjörri úlfakreppu,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups fengi Framsóknarflokkurinn engan mann kjörinn á Alþingi ef gengið yrði til kosninga nú.Formannsskiptin hafi engu breytt fyrir flokkinn og Eiríkur segir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, sem á ekki sæti á Alþingi, vera í erfiðri stöðu.Hann segir Miðflokkinn, sem er í mikilli uppsveiflu og mælist næststærstur í könnun Gallups, taka plássið sem Framsókn átti áður.Óhugsandi að Vinstri græn dyttu útEiríkur segir nær óhugsandi að Framsóknarflokkurinn, burðarflokkur í íslenskum stjórnmálum, detti út af þingi.En þetta er þó þróun sem er byrjuð að verða í þessa átt, að svona kjarnaflokkurinn, hinn svokallaði fjórflokkur, það er farið að kvarnast úr honum.

Nær óhugsandi að Framsókn detti út af þingi

Vinstri grænir fóru af þingi seinast og einhver hefði nú talið það óhugsandi. Framsóknarflokkurinn getur farið sömu leið. Þannig að þar er augljós breyting.“Eiríkur segir flokkalandslag Íslands hafa tekið breytingum síðustu ár. Á 20. öldinni og fram á þessa öld hafi flokkakerfi Íslands verið stöðugt.Þetta fer svo allt að riðlast svona í kringum hrunið má segja og sérstaklega með fjölgun flokka,“ segir hann. En þá erum við aðeins að fara til baka aftur samkvæmt þessum könnunum. En það eru þó flokkar sem mælast rétt undir þröskuldi svo þeim fækkar ekki endilega.“Prófessor í stjórnmálafræði segir nær óhugsandi að Framsókn detti út af þingi. Framsóknarflokkurinn mælist í fyrsta sinn utan þings í nýjum þjóðarpúlsi Gallups.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More