Mokstur gengur hægt á Fjarðarheiði
April 4, 2026
RÚV
Víða er unnið að mokstri á Norðaustur- og Austurlandi og stefnt að opnun á öllum helstu vegum. Búið er að opna um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði, en þar er snjóþekja. Lokað er um Hófaskarð. Ófært er um Vatnsskarð eystra, en stefnt er að mokstri og opnun. Opið er um Fagradal, en þar er hálka.Fjarðarheiði er lokuð og hófst mokstur þar í morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni gengur mokstur hægt en næstu upplýsingar koma um stöðuna um klukkan 11.30.Vegagerðin varar við blindum akstursskilyrðum frá því síðdegis í dag og fram á páskadagsmorgun. Slíkar aðstæður geta skapast frá Ljósavatnsskarði á Norðausturlandi, og suður til Hafnar í Hornafirði. Búist er við allhvössum vindi og snjókomu og getur orðið blint á vegum til miðnættis á Norðausturlandi, fram á miðja nótt á Austfjörðum og fram til sex í fyrramálið á suðausturhorninu.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.