Mikilvæg höfn í Rússlandi skemmd eftir árásir
World

Mikilvæg höfn í Rússlandi skemmd eftir árásir

March 29, 2026
RÚV
Scroll

Ein mesta olíuútflutningshöfn Rússlands er skemmd eftir drónaárásir í nótt. Aukinn þungi er í árásum Úkraínuhers á innviði í Rússlandi.Úkraínuher gerði í nótt drónaárás á höfnina Ust-Luga í Rússlandi, nálægt landamærunum að Eistlandi. Höfnin, sem er við Finnlandsflóa, er ein sú mikilvægasta fyrir útflutning Rússa á olíu, kolum og áburði. Þetta var önnur árásin á höfnina á innan við viku.

Mikilvæg höfn í Rússlandi skemmd eftir árásir

Héraðsstjóri Norður-Leníngrad segir í færslu á samfélagsmiðlum að höfnin sé skemmd en að ekkert manntjón hafi orðið. Mikinn svartan reyk lagði frá höfninni í morgun.Aukinn þungi er í árásum Úkraínu á innviði í Rússlandi, svo sem á olíuhreinsistöðvar, olíubirgðastöðvar og hafnir. Úkraínsk stjórnvöld segja tilgang árásanna að minnka tekjur Rússa þannig að það komi niður á getu þeirra til að fjármagna hernað sinn í Úkraínu. Stjórnvöld í Úkraínu hafa ekki tjáð sig um árásina í nótt.Samkvæmt nýlegri greiningu fjölmiðilsins Reuters á markaðstölum hefur dregið úr olíuútflutningi Rússa um 40 prósent eftir ítrekaðar drónaárásir Úkraínuhers að undanförnu.Ekkert lát er á árásum Rússlandshers og samkvæmt yfirvöldum í Úkraínu drap herinn þrjá almenna borgara síðasta sólarhring og særði tuttugu, hið minnsta. Herinn beindi árásardróna að bíl í borginni Kherson og drap bílstjórann.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More