Mikið foktjón á Þórshöfn
World

Mikið foktjón á Þórshöfn

April 7, 2026
RÚV
Scroll

Mikið hvassviðri gerði á Þórshöfn í nótt sem varð til þess að þakið fauk af Beitingahöllinni, gömlu húsi sem er að mestu í eigu sveitarfélagsins. Þakið fauk af, plötu fyrir plötu, og olli tjóni á nærliggjandi húsi Ísfélagsins.Húsið skemmdist verulega í nótt. Það fór af því allt þakið og ekki í heilu lagi heldur nánast plötu fyrir plötu og olli skemmdum hinum megin við götuna á húsi sem Ísfélagið á,“ segir Björn S.

Mikið foktjón á Þórshöfn

Lárusson, sveitarstjóri Langanesbyggðar.Tjónið er töluvert og segir Björn að líklega þurfi að rífa húsið. Sveitarfélagið, ásamt tryggingafélögum, er að meta tjónið eins og er. Húsið er gamalt, byggt fyrir miðja síðustu öld og þjónaði áður sem beitingahús fyrir sjómenn. Það hefur tilfinningalegt gildi fyrir íbúa.Þrátt fyrir tjónið var björgunarsveitin ekki kölluð til en einhverjir urðu varir við hávaðann sem fylgdi.Nei björgunarsveitin var ekki kölluð út enda veðrið þannig að ég efast um að það hafi mikið verið hægt að gera í því að fara að fergja plötur sem að fóru eins og skæðadrífa þarna yfir,“ segir Björn. Nokkur óvissa ríkir um framhaldið, enda stutt í næstu lægð og hvassviðri á svæðinu:Spáin er ekki góð fyrir kvöldið þannig það er verið að þrífa upp allt sem gæti fokið núna en veggirnir eru mjög veikburða og við vitum ekki hvað gæti gerst.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More