Miðflokksmenn óvinsælli en múslimar
April 8, 2026
RÚV
Stuðningsfólk Miðflokksins er óvinsælast stuðningsfólks íslenskra stjórnmálaflokka samkvæmt könnun Fjölmiðlanefndar á viðhorfum til mismunandi hópa. 31 svarenda mislíkar stuðningsfólk flokksins. Af trúarhópum sem tilteknir eru í könnuninni mislíkar flestum múslimar eða 21 prósent.Þetta kemur fram í skýrslu Fjölmiðlanefndar um áróður og viðhorf til mismunandi hópa.
Einni spurningu er sérstaklega ætlað að skoða skautun í íslensku samfélagi og hún hljóðar svo:Hér fylgir listi með ólíkum hópum í samfélaginu sem fólk getur haft mismunandi skoðanir á. Er einhver hópur sem þér mislíkar mjög?Af 49 hópum á listanum mislíkar flestum andstæðingar bólusetninga, 65. Næst kemur stuðningsfólk hernaðaraðgerða Ísraels á Gaza sem 61,4 mislíkar, þá andstæðingar þungunarrofs (56,2) og þeir sem afneita loftslagsbreytingum (51,7). Nánar um spurninguna og hugmyndafræðina Úr skýrslu Fjölmiðlanefndar:Einni spurningu í könnuninni var sérstaklega ætlað að skoða skautun í íslensku samfélagi. Um er að ræða spurningu sem upphaflega er fengin frá Svíþjóð en sem aðlöguð var að íslensku samfélagi. Dæmi um breytingar frá upphaflegu sænsku spurningunni er að sænskum stjórnmálaflokkum var skipt út fyrir íslenska stjórnmálaflokka og ekki var spurt um Sama líkt og gert var í Svíþjóð. Þátttakendur sáu lista yfir hina ýmsu hópa samfélagsins og fengu val um hvort þeir hökuðu við tiltekinn hóp eða hópa ef þeim mislíkaði mjög við einhverja þeirra. Sama spurning var lögð fyrir í spurningakönnun Fjölmiðlanefndar árið 2022 og var þá spurt um sömu hópa en í ljósi breytinga í samfélaginu hefur nokkrum hópum verið bætt við.Sé litið til stuðningsfólks stjórnmálaflokka mislíkar flestum stuðningsfólk Miðflokksins eða 30,8. Næstflestum mislíkar stuðningsfólk Sósíalistaflokksins, 18,9, og þar á eftir er stuðningsfólk Pírata, sem 18,1 sagðist mislíka mjög. 17,5 mislíkar stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins.Af þeim sem svöruðu mislíkar 12,4 innflytjendur en aðeins 0,9 mislíkar Pólverjar. Þeir eru raunar í þriðja neðsta sæti. Aðeins kjötætur og gagnkynhneigðir eru neðar á listanum.Þrír trúarhópar, auk trúleysingja, eru á listanum. Flestum mislíkar múslimar, eða 21,1, 7,4 mislíkar gyðingar, 4 trúleysingar og 3 kristnir.Í fimmta sæti yfir þá sem flestum mislíkar eru talsmenn þess að kynin séu aðeins tvö, 39,7 segja að sér mislíki þessi hópur mjög. Á listanum eru einnig talsmenn þess kynin séu fleiri en tvö, sem 22,6 mislíkar mjög. Þá sögðu 6,9 að þeim mislíkaði trans fólk og tæp 2 sögðust mislíka samynhneigðir. Nánar um könnunina Könnun þessi er gerð af Maskínu fyrir Fjölmiðlanefnd og Netvís. Skýrsla þessi fjallar um lýðræði og skautun – Upplifun fólks af áróðursherferðum erlendra ríkja, áhrif á kosningar og viðhorf til mismunandi hópa samfélagsinsKönnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljunúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur eru af öllu landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Við úrvinnslu voru gögnin vegin til samræmis við tölur Hagstofunnar þannig að hópurinn sem svarar endurspeglar þjóðina út frá kyni, aldri, búsetu og menntun. Við vigtun gagna getur birst örlítið misræmi í fjöldatölum og hlutföllum sem orsakast af námundun.Gagnaöflun fór fram dagana 3. – 10. nóvember 2025 og voru svarendur 978 talsins
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.