„Mér líður eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“
0
World

„Mér líður eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“

April 21, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir það ekki koma sér á óvart að Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar opinberi skoðun sína á launahækkun hennar sem stjórn VR samþykkti fyrir helgi. Hún segir Sólveigu hafa sterkar skoðanir á mörgu sem varði bæði VR og hana sjálfa.Fyrir helgi samþykkti stjórn VR að hækka laun Höllu um 12 prósent. Sólveig Anna hefur gagnrýnt launahækkunina harðlega sem hún segir skjóta skökku við lög Alþýðusambands Íslands.Þetta er allt á einn veg“Ég er ítrekað spurð um hvað þetta sé á milli ykkar“, en staðreyndin er sú að það er nákvæmlega ekkert á milli okkar.

„Mér líður eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“

Þetta er allt á einn veg,“ segir Halla í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í dag.Þar segist hún ekki hafa tölu á fjölmiðlaviðtölum og Facebook-færslum Sólveigar Önnu sem fjallað hafa um hana.Hún hefur skammast yfir því hvað ég segi, yfir því hvað ég segi ekki, yfir því hvað hún segir að ég hafi einhvern tímann sagt (og það er iðulega farið ranglega með) og yfir þeim sjónarmiðum, jafnvel hvötum, sem hún gerir mér upp,“ segir Halla.Hún hefur líka kvartað ítrekað yfir því að ég sé yfirleitt kölluð til álits í fjölmiðlum og reynt að fá þá til að hætta að ræða við mig og tala frekar við hana.“Segir umræðu Sólveigar persónulega árásÍ færslunni greinir Halla frá því að eftir ákvörðun stjórnar VR hafi heildarlaun formanns hækkað úr 1.724.064 krónum í 1.913.000 krónur. Þá séu laun hennar eftir hækkunina jafnframt lægri en heildarlaun síðasta formanns.Halla segir umræðuna af hálfu Sólveigar Önnu ekki snúa að ákvörðun stjórnar VR heldur að persónulegri herferð Sólveigar Önnu gegn félaginu og henni sjálfri.Mér líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli. Ef ég tjái mig er líklegt að næsta frétt á eftir verði upp úr einhverjum Facebook-orðaflaumi Sólveigar Önnu.“Hún segist almennt hafa tekið þá afstöðu að svara ekki þar sem það gagnist hvorki VR né verkalýðshreyfingunni í heild sinni. Mikilvægara sé að leggja áherslu á efnisatriði og það sem sameini launafólk, ekki það sem sundrar því.Rætur þessarar þráhyggju liggja í því að hún hefur viljað að önnur félög innan ASÍ setji hagsmuni síns eigin félagsfólks til hliðar og heyi heldur kjarabaráttu á forsendum sem þóknast hagsmunum Sólveigar Önnu.Tryggð formanns VR á að hennar mati að liggja hjá formanni Eflingar, ekki hjá félagsfólki. Inn á þetta hef ég ekki viljað gangast. Ég er kjörin til að gæta hagsmuna VR félaga og ég mun halda því áfram af einurð. Ég mun hvorki standa né sitja, þegja né tala, eftir því sem þóknast Sólveigu Önnu.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More