Advertisement
Meira en helmingur auglýsingafjár fer til útlendra miðla
World

Meira en helmingur auglýsingafjár fer til útlendra miðla

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Auglýsingakaup íslenskra fyrirtækja og stofnana hafa tvöfaldast frá 2009 en sú aukning hefur nær öll farið í auglýsingakaup á erlendum miðlum. Tekjur þeirra af íslenskum auglýsingum hafa 26-faldast á hálfum öðrum áratug en auglýsingatekjur íslenskra miðla hafa aðeins aukist um átta prósent.Þetta kemur fram í nýrri úttekt Hagstofu Íslands á upphæðum sem fyrirtæki og stofnanir verja til auglýsingakaupa og hvernig þær greiðslur skiptast.Hagstofan hefur tekið saman upplýsingar um auglýsingakaup íslenskra fyrirtækja og stofnana frá 2009.

Meira en helmingur auglýsingafjár fer til útlendra miðla

Nýjustu tölurnar, sem birtar voru í dag, taka til auglýsingakaupa ársins 2024. Þá gerðist það í fyrsta skipti að Íslendingar vörðu meira fé til auglýsingakaupa af erlendum fyrirtækjum en íslenskum. Hagstofan hefur ekki upplýsingar um hlutdeild einstakra fyrirtækja en segir að gera megi ráð fyrir að verulegur hluti auglýsingafjárins renni til tveggja stórfyrirtækja. Það eru Alphabet með Google og Youtube og Meta með Facebook og Instagram. Þau fengu 97 prósent þeirra auglýsingatekna sem fóru í gegnum greiðslukortaviðskipti.Auglýsingakaup Íslendinga námu samtals 29,4 milljörðum króna 2024. Þar af runnu tæpir fimmtán milljarðar, 51 prósent, til erlendra fyrirtækja en 14,4 milljarðar til íslenskra fyrirtækja.Auglýsingatekjur erlendra fyrirtækja á Íslandi jukust um ellefu prósent en tekjur íslenskra fyrirtækja drógust saman um eitt prósent.Hagstofan segir alls óvíst hversu mikið af þeim auglýsingum sem eru keyptar af erlendum fyrirtækjum beinist að innlendum neytendum og hversu mikið að erlendum neytendum. Útstreymi auglýsingafjár sé þó aðeins að hluta á kostnað innlendra miðla.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More