0
Markalaust jafntefli West Ham og Crystal Palace felldi Úlfana
April 20, 2026
Posted 3 hours ago by
West Ham og Crystal Palace gerðu markalaust jafntefli í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Jafnteflið reyndist öðru liði dýrkeypt því Úlfarnir eru nú formlega fallnir eftir átta ára veru í efstu deild. Það var hart barist hjá West Ham og Crystal Palace í kvöld en hvorugt liðið skoraði þó mark.EPA / DAVID CLIFFÚlfarnir, Wolverhampton Wanderers, hafa verið svo gott sem við límdir við botninn allt tímabilið og aðeins unnið þrjá leiki.
Liðið er með 17 stig og stigið sem West Ham tryggði sér með jafntefli kvöldsins þýðir að Úlfarnir geta ekki náð þeim. West Ham er þó ekki sloppið verandi aðeins tveimur stigum frá fallsvæðinu í 17. sæti með 33 stig. Tottenham er í 18. sæti með 31 stig en Burnley kemur þar á eftir með 20 stig.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.