Margir áttuðu sig ekki á vegalokunum
April 7, 2026
RÚV
Margir sem höfðu samband við umferðarþjónustu Vegagerðarinnar í óveðrinu í gær virtust ekki hafa vitað af vegalokunum og nokkuð var um að fólki þótti að lokað væri að tilefnislausu. Lögreglan á Suðurlandi segir útköll hafa verið töluvert fleiri en síðast þegar gefin var út appelsínugul veðurviðvörun á Suðurlandi.Fólk var mjög duglegt að leita sér upplýsinga og líka á umferðin.is.
Það kom okkar fólki reyndar dálítið á óvart að fólk virtist vera minna meðvitað um fyrirhugaðar lokanir miðað við fréttaflutning af veðrinu,“ segir Sólveig Gísladóttir, sérfræðingur á samskiptasviði Vegagerðarinnar.Tók langan tíma að losa bíla á SuðurlandiHellisheiði og Þrengslum var lokað um tíma og Hringvegurinn frá Markarfljóti að Öræfum var lokaður nær allan daginn.Flest verkefni viðbragðsaðila á Suðurlandi sneru að því að losa bíla, til að mynda á Hellisheiði, í Þrengslum og á Þingvöllum. Útköll voru á þriðja tug – mun fleiri en síðast þegar gefin var út appelsínugul viðvörun á Suðurlandi, segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi.Þetta var talsverð veðurhæð og má búast við að það gerist eitthvað en við viljum náttúrulega reyna að lágmarka það eins og hægt er og að fólk sé ekki á ferli. En það var fólk á ferli og það lenti í vandræðum. Það tók ansi langan tíma að leysa úr því.“Þorsteinn segir marga ferðamenn hafa verið í kringum Þingvelli. Mögulega skili tilkynningar um viðvaranir sér ekki nægilega vel til erlendra ferðamanna.Bílar í sköflum sáust ekki í vefmyndavélSólveig segir að fólk kvarti gjarnan yfir vegalokunum þegar það hringir í umferðarþjónustuna. Hún segir mikilvægt að hafa í huga að ákvarðanir séu byggðar á mati á aðstæðum hverju sinni.Fólki finnst oft að það eigi að vera opið þó að aðstæður séu ekki þannig. Það sér þá, inni á Umferðin.is, vefmyndavélarnar okkar að það sýni auðan veg. En það má alveg taka fram að þær segja lítinn part af sögunni, bæði sést veðrið og vindstyrkurinn ekki í vélunum og svo hafa þær takmarkaða sýn,“ segir Sólveig.Við fengum til dæmis um daginn ábendingu um auðan veg á Holtavörðuheiði í vefmyndavélinni en það sást ekki að nokkrum metrum aftan við vélina voru tveir bílar fastir í skafli.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.