0
Mannleg mistök að listi Miðflokksins hafi ekki skilað sér: Telur flokkum mismunað
April 13, 2026
Posted 3 days ago by
Framkvæmdastjóri Miðflokksins segir miður að íbúar Árborgar eigi ekki kost á að kjósa Miðflokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum. Úrskurðarnefnd kosningamála komst í dag að þeirri niðurstöðu að Miðflokkurinn fengi ekki að bjóða fram lista í Árborg, vegna þess að honum var skilað inn of seint.Gunnar Bragi Sveinsson, segir það einfaldlega hafa verið mannleg mistök að listinn hafi ekki verið afhentur kjörstjórn á réttum tíma.
Þeir sem hafi safnað meðmælendum hafi einfaldlega ekki áttað sig á að skila þyrfti listanum í eigin persónu.Þeir héldu að þar sem allt gerist rafrænt og þá fari þetta sjálfkrafa rafrænt til yfirkjörstjórnar, sem var ekki, og það uppgötvaðist rétt um hádegi.“Vill ekki gefa upp hverjir hefðu skipað listannHann segir ljóst að Miðflokkurinn muni því ekki bjóða fram í Árborg en aðspurður vill hann ekki gefa upp hverjir hefðu skipað listann.Þannig að nú er það þannig að íbúar í Árborg verða af því að sjá Miðflokkinn á kjörseðli. Það var þó greinilega mikil eftirspurn eftir því miðað við undirskriftirnar sem gekk mjög vel að safna á innan við sólarhring, yfir hundrað meðmælendur. Þetta er að sjálfsögðu bara í boði kjörstjórnar.“Enginn sveigjanleiki sýndurHonum þyki nokkuð ósanngjarnt að yfirkjörstjórn hafi ekki haft samband við Miðflokkinn þegar ljóst hafi orðið að þeir væru að renna út á tíma, enda hafi þau haft vitneskju um að Miðflokkurinn væri að safna meðmælendum.Almennt sé sýndur einhver sveigjanleiki í þessum efnum en það hafi ekki verið gert í tilfelli Miðflokksins. Gunnar segir yfirkjörstjórn hafa borið fyrir sig að hún hafi ekki haft símanúmer til að hringja í, en bendir á að auðvelt sé að nálgast númer flokksins á vefsíðu hans.Ef þetta hefði verið einhver annar flokkur sem á sæti í kjörstjórninni hefði klárlega verið búið að hringja inn og láta vita. Þannig þessu er misskipt og ég tel að til lengri tíma þurfi bara að breyta þessu. Það getur ekki verið að það sé svona augljós mismunun á milli flokka.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.